Erna Ýr Öldudóttir skrifar:
Alvarleg þróun er að eiga sér stað ef að aðilar telja sig geta ruðst inn í einkalíf og líkama viðskiptavina sinna. Með því að taka lífsýni úr einstaklingum er verið að reyna að stjórna lífsstíl þeirra.
Í frétt á Vísi í dag segjast forsvarsmenn líkamsræktarstöðvanna Reebok Fitness og Sporthússins vera jákvæðir gagnvart samstarfi við sjálfstætt lyfjaeftirlit um lyfjaprófanir á korthöfum í stöðvum þeirra. Það þýðir að ef einstaklingur vill stunda líkamsrækt á þessum líkamsræktarstöðvum verður viðkomandi að skrifa undir skilmála sem samþykkir að líkamsræktarstöðin geti látið framkvæma lyfjapróf á viðkomandi.
Ef að lýðheilsusjónarmið hins opinbera, markmið íþróttahreyfinga og ímyndarvandi fyrirtækja felur í sér að fyrirtækin krefji neytendur um að gefa eftir frelsi og réttindi til friðhelgi einkalífs ásamt grundvallarmannréttindunum að taka frjálst ákvarðanir um eigið líf og líkama, þá er kominn tími til að neytendur hugsi sig um áður en þeir skipta við slíka aðila. Notkun vöðvaaukandi efna kemur engum við nema þeim sem að það stundar. Jafnvel þó efnin gætu verið álitin óholl.
Afskiptasemi þeirra sem telja sig vita hvað öðrum er fyrir bestu verður að stoppa einhversstaðar og ímynd líkamsræktarstöðva trompar ekki mannréttindi viðskiptavinanna. Ef neytendur láta svona inngrip yfir sig ganga og þessi framkoma gagnvart fólki verður samþykkt viðmið í samfélaginu í þeim tilgangi að ná pólitískum markmiðum stjórnvalda og/eða ímyndarmarkmiðum félaga og fyrirtækja, hverju megum við borgararnir þá eiga von á í framhaldinu?