Davíð Þorláksson fyrrverandi formaður Sambands Ungra Sjálfstæðismanna, SUS, gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt um 11% og segir hana stangast á við stefnu flokksins sem var ákveðin á landsfundi og hljóti að vera Íslandsmet í viðsnúningi.
Vísar Davíð, sem starfar nú við ferðaþjónustu, í ályktun á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins þar sem flokkurinn markaði sér stefnu í málefnum ferðaþjónustunnar, kemur eftirfarandi fram:
„Mikilvægt er að hið opinbera leggi ekki stein í götu ferðaþjónustunnar með aukinni skattlagningu.“
Í grein í Morgunblaðinu í dag segir Davíð að fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um að hækka virðisaukaskattinn á ferðaþjónustu lýsa miklu skilningsleysi á því alþjóðlega samkeppnisumhverfi sem ferðaþjónustan búi við. Lág flugfargjöld og miklir tengimöguleikar geri það að verkum að hægt sé að komast nánast hvert sem er í heiminum með litlum tilkostnað og því hafi ferðamenn úr nær óþrjótandi möguleikum að velja sem þýði að Íslendingar þurfi að vera á tánum og tryggja að ferðamönnum finnist að þeir séu að greiða sanngjarnt verð fyrir það sem þeir fá og vilji koma hingað. Segir Davíð að meira en 11% hækkun á verði, ofan á miklar verðhækkanir vegna styrkingar krónunnar, án þess að gæði aukist í réttu hlutfalli muni augljóslega leiða til minni tekna af ferðamönnum en ella, fyrir atvinnugreinina, ríkissjóð og sveitarfélögin.
Minni fyrirtæki koma verst út
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í samtali við RÚV á mánudaginn að samkeppnisstaða ferðaþjónustunnar væri það síðasta sem hann hefði áhyggjur af. Fjöldi ferðamanna á Íslandi hafi ferfaldast á fáum árum og sé á mörkum þess sem þjóðin ráði við og sagðist Bjarni ekki hafa í hyggju að draga í land með að hækka virðisaukaskatt á greinina. Davíð segir þetta ekki gáfuleg rök:
Að nota ferðamannafjölda sem mælikvarða er jafngáfulegt og að nota fjölda veiddra þorska sem mælikvarða í sjávarútvegi. Það er afkoman sem skiptir öllu máli og afkoma greinarinnar var ekki góð á síðasta ári og hún stefnir í að verða enn verri á þessu ári vegna hækkunar krónunnar. Þar koma minni fyrirtæki, sem hafa ekki kost á að baktryggja sig fyrir hækkun krónunnar, verst út.
„Það er auðvitað tóm þvæla“
Varðandi ummæli Bjarna um að fjölgun ferðamanna sé á mörkum hins viðráðanlega segir Davíð það tóma þvælu:
Það er auðvitað tóm þvæla. Það er vel hægt að taka við fleiri ferðamönnum utan háannatíma og utan vinsælustu ferðamannastaðanna á Suðvestur- og Suðurlandi. Þessar skattahækkanir eru einmitt líklegar til að koma harðar niður á landsbyggðinni og vetrarferðamennsku og minnka þannig hagkvæmari dreifingu ferðamanna yfir árið og landið.
Ég hef stutt Sjálfstæðisflokkinn síðan ég komst til vits og ára, fyrst og fremst vegna þess að hann segist standa fyrir lágum sköttum og góðu rekstrarumhverfi fyrir atvinnulífið. Það er því sérstaklega erfitt fyrir mann að horfa upp á flokkinn sinn standa fyrir stórfelldum skattahækkunum sem munu skerða verulega samkeppnishæfni mikilvægustu atvinnugreinar landsins og þannig leiða til þess að greinin muni skila minni skatttekjum en ella.