fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

EES og orðalagið

Egill Helgason
Mánudaginn 16. febrúar 2015 10:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar EES samningurinn var gerður voru aðilar að honum auk Íslands, Noregur, Liechtenstein, Svíþjóð, Austurríki og Finnland.

Þrjú síðastnefndu ríkin gengu stuttu síðar í Evrópusambandið sjálft, og í raun er EES-samningurinn núorðið aðallega rammi utan um samskipti Noregs og ESB. Ísland teikar Noreg, ef svo má að orði komast.

Sérkennilegur er sá málflutningur Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfisráðherra að réttast væri að „milda orðalag“ við þýðingu tilskipana frá EES. Hvaða gagn gæti verið að því? Á að setja mjúkan fókus á þýðingarnar svo þær líti betur út?

Nei, auðvitað er aðalmálið að við Íslendingar fáum lög og reglur frá EES og höfum ekkert um innihald þeirra að segja. Þurfum að samþykkja þær hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þannig virkar þessi samningur – í honum hefur alltaf verið fullveldisafsal, svo notað sé tískuorð. Allt alþjóðasamstarf felur auðvitað í sér fullveldisafsal.

Þetta er náttúrlega ekki spurning um orðalag, heldur hvort þessi samningur henti Íslandi. Mitt í allri  umræðunni um ESB-aðild hefur lítið örlað á umræðu um kosti og galla EES-samningsins og framtíð hans. Hún veltur á tvennu, áhuga eða áhugaleysi Evrópusambandsins á að veita samningnum framhaldslíf, jafnvel gera breytingar á honum, og afstöðu Noregs. Ísland skiptir engu máli í því sambandi.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi