fbpx
Þriðjudagur 10.júní 2025
Eyjan

Kristinn: Besti Samherjinn

Egill Helgason
Fimmtudaginn 29. mars 2012 08:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, gerist mjög harðorður gegn kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Hann telur að stjórnarflokkarnir hafi svikið loforð sín – og kallar Steingrím J. Sigfússon „besta Samherjann“.

Kristinn skrifar á vef sinn:

„En seinna málið er sérhagsmunaaðilunum sannkallað gleðiefni. Stjórnarflokkarnir hafa kastað fyrir borð stefnu sinni, sem þeir kynntu fyrir síðustu Alþingiskosningar, og tekið upp stefnu stjórnarandstöðuflokkanna, en herða þó frekar á en hitt á einokun og langtímaforræði valinna útgerðarmanna á nær öllum veiðirétti á Íslandsmiðum. Unnið verður áfram gegn jafnræði, gegn samkeppni, gegn verðmyndun á markaði, gegn samkeppni og gegn virkum eftirlitsstofnunum.

Áfram verður hringamyndun, markaðsyfirráð og markaðsmisnotkun á einstökum mörkuðum. Áfram verður hægt að færa hagnaðinn milli útgerðar og vinnslu og þaðan til sölufyrirtækja í útlöndum og fela hann þar. Áfram geta handhafar kvótans leigt hann, veðsett og selt og áfram geta þeir flutt veiðiheimildirnar hvert á land sem er. Áfram verður 95% kvótans er afhentur völdum útgerðarmönnum á verði sem er langt undir markaðsverði. Áfram verða sjómenn og landverkafólk réttlausir og sem lús milli tveggja nagla í höndum útvegsmanna. Áfram eiga útgerðarmennirnir einir kvótann. Það verður sem sé áfram framsóknarstefnan og íhaldsstefnan.

Það er hins vegar enginn vafi á því að mikill meirihluti er á Alþingi fyrir kvótafrumvarpinu sem „róttæki vinstri flokkurinn“ hefur samið fyrir ríkisstjórnina í nánu samráði við valinkunna útgerðarmenn. Líklegast er að niðurstaðan verði sú að seinna frumvarpið , um stjórn fiskveiða, verði samþykkt, og kvótinn afhentur varanlega til 20 ára ef ekki lengur, til fyrirframvalinna útgerðarmanna að þjóðinni forspurðri. Einhver hækkun á veiðigjaldinu gæti orðið, en hvenær sem er verður hægt að lækka það aftur án þess að það hafi nokkur áhrif til styttingar á einkanýtingartímanum.

Það þarf enginn að velkjast í vafa um það að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn munu við fyrsta tækifæri lækka veiðigjaldið og greinilegt er á forystu Vinstri grænna, sérstaklega formanni flokksins, að þeirra hugur stendur til þess líka. Hreinn hagnaður, eftir allan kostnað, afskriftir og árgreiðsluvexti, mun skipta háum fjárhæðum á næstu 20 árum, líklega ekki undir 1000 milljörðum króna. Til þessa hefur innan við 3% runnið til þjóðarinnar af hagnaðnum þann stutta tíma sem veiðigjald hefur verið við líði. Rúm 97% hagnaðarins hefur komið í hlut handhafa kvótans. Það finnst LÍÚ of lítið og ósanngjarnt og það finnst forystu Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins líka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Kemur týndi sonurinn heim í Framsókn?

Orðið á götunni: Kemur týndi sonurinn heim í Framsókn?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK
Eyjan
Fyrir 1 viku

Play hlýtur sjálfbærniásinn annað árið í röð

Play hlýtur sjálfbærniásinn annað árið í röð