Risavaxið smástirni er sagt vera á leið framhjá jörðinni.
Það er úr gulli – í smástirninu er meira gull en hefur verið unnið á jörðinni frá upphafi vega.
Gullið er sagt vera virði tuttugu þúsund milljarða dollara.
Við í fjölskyldunni erum á leiðinni út úr húsinu að vita hvað við getum gert.
Reyndar gæti vandinn verið sá að þegar stóra gullstirnið er komið til jarðar myndi það hafa mikil áhrif á gullverð – það myndi snarlækka.
Svona eins og þegar Spánverjar og Portúgalir fóru að flytja allt gullið frá Nýja heiminum og þeir héldu að það myndi tryggja þeim eilíft ríkidæmi.
En það sem gerðist um síðir var að verðbólga fór úr böndunum og gullverðið lækkaði.
Það var merk lexía í hagfræði.
433 Eros, stór gullklumpur nálægt jörðu.