fbpx
Mánudagur 02.júní 2025
Eyjan

Sjúkt athæfi

Egill Helgason
Mánudaginn 30. janúar 2012 15:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er sjálfsagt mál að rísi moska á Íslandi ef einhver vill byggja hana – það eina sem ég gerði eitt sinn fyrirvara við var að það ætti að vera ljóst hvaðan peningar til slíkrar byggingar koma.

Það er vitað að ofstækisfullir múslimar í Saudi-Arabíu hafa fjármagnað moskubyggingar víða um heim – það verður að vera uppi á yfirborðinu ef svo er.

Að öðru leyti er ekkert við moskubyggingu að athuga og um að gera að veita lóð undir slíkt ef farið er fram á það.

Á Íslandi ríkir trúfrelsi – og múslimum hefur fjölgað hér eins og fólki úr öðrum trúarhópum. Það mun standa til að reisa kirkju fyrir rússneskt rétttrúnaðarfólk og eins hafa verið plön um að byggja hér búddahof.

Það er ógeðslegt til þess að hugsa að einhverjir fáráðlingar séu svo langt leiddir að þeir fari um og grafi svínaúrgang á stöðum þar sem hefur verið rætt um að byggja moskvu. Þetta er svo andstyggilega sjúkt athæfi að maður verður forviða.

Í einum kima Fésbókarinnar er þetta fólk að finna undir yfirskriftinni Mótmælum mosku á Íslandi – það eru reyndar næstum 1700 einstaklingar sem hafa gerst vinir þessa – og þarna er raunar að finna alls kyns útgáfur að rasisma, beinist semsagt ekki bara gegn múslimum. Einn aðalforsprakkinn póstar eftirfarandi:

„Múslimar hafa fengið úthlutað lóð í Reykjavík, til að koma í veg fyrir að þessir andskotar byggi mosku eða eitthvað annað á lóðinni þarf að grafa svínsskrokk þar í jörðu, þá telst landið vanhelgað og þeir verða að finna sér aðra lóð. Mér er… mjög til efs að yfirvöld í Reykjavík hafi mikið langlundargeð gagnvart sífelldum lóðakröfum múslima, svo annað hvort verður þeim sagt að byggja á þessari lóð eða hætta við.
Gröfum helling af svínaúrgangi, s.s. innyflum, hausa og hellum svínablóði á lóðina og þeir munu hrökklast í burtu. Þetta var gert í Svíþjóð, með góðum árangri.
Sýnum samstöðu og alvöru málsins og höldum fund og ræðum málin.
Skúli, boðaðu til fundar. Útvarp Saga mun örugglega verða þér innan handar við boðun fundarins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 9 klukkutímum
Sjúkt athæfi

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Geðstirður karl hættir í vinnunni

Geðstirður karl hættir í vinnunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Bólu-Hjálmar

Óttar Guðmundsson skrifar: Bólu-Hjálmar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Enn tapar Sjálfstæðisflokkurinn fylgi – boðar ekki gott fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2026

Orðið á götunni: Enn tapar Sjálfstæðisflokkurinn fylgi – boðar ekki gott fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2026