Ég hef aldrei séð jafnmarga erlenda ferðmenn í Reykjavík síðla vetrar og nú.
Tíðni flugferða til og frá landinu hefur líka aukist mikið.
Í síðustu viku byrjaði Easy Jet að fljúga hingað – það er sérlega öflugt lágfargjaldaflugfélag.
Á fimmtudaginn er skírdagur, svo kemur föstudagurinn langi, þvínæst páskadagur og annar í páskum.
Með fullt af ferðamönnum í bænum – og allt lokað?
Eða er það liðin tíð?