Atburðir dagsins:
Stjórn Fjármálaeftirlitsins, sem var komin í ógöngur vegna brottrekstrar Gunnars Andersen, datt í lukkupottinn þegar hún fékk nýtt mál til að nota gegn honum. Hún beið ekki boðanna – lét strax henda honum út.
Það er alveg satt sem var sagt hér á síðunni um daginn – þeir eru margir sem vilja losna við Gunnar.
Í þinginu er samþykkt frávísun á tillögu um að vísa máli Geirs Haarde. Geir þar semsagt að standa frammi fyrir dóminum.
En í raun veikir þetta málið gegn honum enn. Hringlandinn er slíkur að þingmenn sem greiddu atkvæði með ákæru á hendur Geir á sínum tíma hafa skipt um skoðun og enn tekst nokkrum þingmönnum að verða fyrir sinnaskiptum frá því í síðustu atkvæðagreiðslu sem var í desember – eða svo virðist manni.
Ákæran byggir á vilja þings sem á í mestu erfiðleikum með að gera upp hug sinn. Það vekur ekki traust.