fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Eyjan

Finnar kjósa forseta

Egill Helgason
Föstudaginn 3. febrúar 2012 23:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er lítið fjallað um það hér, en Finnar velja sér nýjan forseta nú um helgina. Í Finnlandi eru tvær umferðir í forsetakosningum ef enginn fær hreinan meirihluta í þeirri fyrri, í seinni umferðinni er kosið milli tveggja frambjóðanda. Raunar væri eðlilegt að við hefðum slíkt kerfi hér.

Annar frambjóðandinn, Pekka Haavisto, er sérlega athyglisverður. Hann er græningi, sigraði frambjóðendur úr stærri flokkum í fyrri umferðinni – og hann er samkynhneigður.

Haavisto er í sambúð með manni frá Ekvador sem nefnist Antonio Flores. Hann starfar sem hárgreiðslumaður, og er nú orðinn þekkt persóna í Finnlandi. Margir telja að hann gæti orðið ágætis maki forseta.

Fyrir tólf árum kusu Finnar Tarja Halonen sem forseta, það þótti djarft val á sínum tíma – hún var ógift, einstæð móðir, og hafði sagt sig úr þjóðkirkju landsins. Hún hefur verið feiki vinsæl, en má ekki sitja meira en tvö kjörtímabil sem nú eru liðin.

Andstæðingur Haavisto er Sauli Niinistö. Hann er hósamur hægrimaður og er talinn líklegri til að sigra. Niinistö var í framboði gegn Halonen fyrir sex árum en tapaði.  Finnar hafa löngum valið sér sósíaldemókrata sem forseta, en sú hefð verður rofin að þessu sinni.

Það þykir raunar ekki mikill meiningarmunur milli frambjóðendanna, Haavisto hefur reynt að fjarlægja sig frá flokki græningja sem hefur verðið tortrygginn í garð Evrópu. Hann er sjálfur evrópusinni sem og Niinistö og báðir eru þeir fylgjandi því að Finnar taki þátt í björgun evrunnar.

Pekka Haavisto og Antonio Flores, komast þeir alla leið í forsetahöllina í Helsinki?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinstri græn skamma Moggann – „Til að taka af öll tvímæli“

Vinstri græn skamma Moggann – „Til að taka af öll tvímæli“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þungt högg fyrir Demókrata

Þungt högg fyrir Demókrata