fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Eyjan

Stærsta svikamylla heims

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. febrúar 2012 11:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er að lesa merka bók sem nefnist Treasure Islands, Tax Havens and the Men who Stole the World. Bókin er eftir Nicholas Shaxson sem hefur starfað sem blaðamaður bæði á Financial Times og The Economist. Shaxson liggur mikið á hjarta í þessari bók og efni hennar er afar mikilvægt.

Bókin lýsir neti fjármagnsparadísa sem teygir sig um allan heim – netið þéttist mjög í kringum Bretland, margar fjármagnsparadísirnar eru mjög tengdar Bretlandi og reyndar er því haldið fram að City í London sé fjármagnsparadís. Þangað sogast óhreint fjármagn víða úr veröldinni.

Fjármagnsparadísir hafa aðallega tvíþættan tilgang – að hjálpa auðugu fólki og fyrirtækjum að komast hjá því að borga skatta og að hjálpa auðugu fólki og fyrirtækjum til að fela alls kyns fjármálagjörninga. Þær eru líka miðstöðvar fyrir peningaþvott. Stórfyrirtæki nota þessar miðstöðvar til að fela gróða sinn og komast undan sköttum.

Það er ekkert í starfsemi fjármagnsparadísa sem kemur almenningi til góða – þvert á móti má líta á þær sem samsæri gegn almenningi. Þeir sem hagnast eru fáir útvaldir.

Þetta er í fáum orðum sagt stærsta svikamylla heims.

Stjórnvöld í Bretlandi standa náttúrlega vörð um sína fjármagnsparadís – stjórnmálaflokkarnir þar eru að nokkru leyti eins og útibú frá City.

Á vef Evrópuvaktarinnar er því lýst hver viðbrögð Davids Camerons eru við tillögum um að leggja á fjármagnsfærsluskatt – hann býður franska banka velkomna til Bretlands svo þeir geti komist hjá því að leggja til samfélagsins þar. Hugmyndin að baki þessu er sú að það sé bara litla fólkið sem greiðir skatta – þeir sem eru svo vonlausir að þeir geta ekki komið sér undan því.

Cameron notar hið gamla skákaskjól stjórnmálamanna, að þetta kosti störf:

„Ég veit að ég notaði orðið geðveiki en mér finnst ekkert furðulegt að gera það. Framkvæmdastjórn ESB hefur sagt okkur að skattheimtan muni kosta ESB fimm hundruð þúsund störf. Nú á tímum baráttu okkar fyrir fleiri störfum og hagvexti finnst mér furðulegt að grípa til aðgerða sem kosta svona mörg störf. Í anda heilbrigðrar samkeppni við Frakka vil ég segja að taki Frakkar upp fjármagnsfærsluskatt standa dyr okkar opnar og við munum geta fagnað miklu fleiri frönskum bönkum, fyrirtækjum og öðrum í Bretlandi.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinstri græn skamma Moggann – „Til að taka af öll tvímæli“

Vinstri græn skamma Moggann – „Til að taka af öll tvímæli“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þungt högg fyrir Demókrata

Þungt högg fyrir Demókrata