Í Kiljunni í kvöld fjöllum við um Charles Dickens. 7. febrúar eru liðin 200 ár frá fæðingu þessa mikla rithöfundar sem skóp verk eins og Oliver Twist, David Copperfield, A Tale of Two Cities, Great Expectations, Little Dorrit, Bleak House og Hard Times.
Við segjum frá merkri bók sem er nýútkomin og nefnist Mannvist, sýnisbók íslenskra fornleifa. Aðalhöfundur bókarinnar er Birna Lárusdóttir. Bókin lýsir ýmsum tegundum fornleifa sem finna má á landinu – allt frá víkingagröfum og kumli, til samgönguminja og minja sem er að finna í og við sjó. Þetta er einstaklega aðgengilegt verk sem opnar augun fyrir því hvað fornleifar geta verið margvíslegar.
Kolbrún og Páll Baldvin fjalla um tvær bækur: Verðlaunabókina Jón forseti allur eftir Pál Björnsson og spennubókina Samhengi hlutanna eftir Sigrúnu Davíðsdóttur.
En Bragi segir frá vini sínum og eftirminnilegum samborgara, Guðmundi Haraldssyni.
Hin frábæra ljósmynd Sigurgeirs Sigurjónssonar af Guðmundi Haraldssyni, tekin á Prikinu þar sem Guðmundur var fastagestur. Ljósmyndin birtist í bók með myndum eftir Sigurgeir sem nefnist Poppkorn, um hana var fjallað á sínum tíma í Kiljunni og hér á Eyjunni.