Það er rætt um verslunareinokun.
Fræg er sagan af framleiðandanum sem kemur til forstjóra stórrar verslunarkeðju á Íslandi.
Segir við hann að hann geti þetta ekki lengur, það sé ómögulegt að veita verslunarkeðjunni svo mikinn afslátt – hann hafi í raun ekki efni á að selja vörur til hennar lengur.
En um viðbrögð forstjórans er sagt að hann hafi haft einhvers konar leikfangabyssu á skrifstofu sinni, rétt manninum og sagt:
„Viltu ekki bara skjóta þig strax?“
Ég ætla ekki að dæma um hvort þetta er sönn saga eða flökkusaga, en hún hefur verið sögð ansi oft til marks um það ástand sem ríkir hér í verslun.