Ríkisstjórnin getur tæplega látið það eftir bankastjóra og bankastjórn Landsbankans að hækka laun bankastjórans.
Þetta er reyndar orðið mjög dramatískt, það er talað um að Steinþór Pálsson þurfi hætta eða minnka við sig vinnuna vegna þess hvað launin eru léleg.
Þarf hann þá kannski að fá sér kvöldvinnu?
Það hefur reyndar komið fram að enginn toppembættismaður hjá ríkinu hafi hætt vegna launalækkana.
Þannig að ef lögmál um framboð og eftirspurn á vinnumarkaði gildir er engin ástæða til að breyta launastefnunni.
Stór launahækkun til bankastjóra Landsbankans – þar sem laun hans yrðu jafnvel hækkuð upp í það sem er í einkabönkunum Arion og Íslandsbanka – væru skilaboð um að nú sé aftur hægt að taka upp þráðinn með ofurlaunum, kaupaukum og græðgisvæðingu.
Það væri grænt ljós ekki bara til umrædds bankastjóra – heldur á alla línuna. Og að því leyti eru það hugsanlega líka stéttarhagsmunir þeirra sem sitja í bankastjórninni að fá þessi laun hækkuð – þeir fá væntanlega að fleyta rjómann líka – en það sama á varla við um almenning í landinu.