fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Eyjan

Verðbólga enn einu sinni úr böndunum

Egill Helgason
Laugardaginn 28. janúar 2012 11:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það ætti ekki að vera nein þensla í íslenska hagkerfinu, atvinnuleysi er mikið og kaupmáttur hefur lækkað mjög. Samt horfum við upp á verðbólgu sem er 6 prósent. Það er ógnarhátt miðað við nágrannalönd okkar.

Verðbólga á þessu róli er líka stórmál –  vegna verðtryggingarinnar leikur hún heimilin grátt. Skuldirnar hækka stöðugt – á tíma þegar margir glíma við neikvæða eiginfjárstöðu. Miðað við þessa verðbólgu sér fjölskylda sem skuldar 20 milljónir í húsnæði lán hækka um 100 þúsund krónur á mánuði.

Það er sagt að helsti verðbólguvaldurinn nú sé hækkun á opinberum gjöldum. Álögur hækka, það hefur áhrif á vísitölu og hleypur svo beint í húsnæðisverðið. Annað sem veldur verðbólgu er hækkun á húsnæðisverði. Það þýðir í raun að einhverjir eru að kaupa eignir á yfirverði – vegna þess hve fjárfestingartækifæri eru fá er að myndast smá bóla á húsnæðismarkaði.

Íslenska hagkerfið starfar nú þannig að fjárskuldbindingar eru verðtryggðar í bak og fyrir. Þetta er vegna þess að enginn treystir íslensku krónunni. Það virðist hins vegar ekki vera nokkur leið að koma verðbólgunni niður fyrir markmið Seðlabankans – reynslan sýnir að þangað kemst hún hérumbil aldrei.

Annað sem hefur svo áhrif eru gjaldeyrishöftin. Enn hefur ekki verið hægt að fella þau niður. Fall krónunnar magnaði verðbólguna óskaplega – þaðan höfum við hin „stökkbreyttu“ lán og að einhverju leyti 60 prósenta hækkun á vöruverði á stuttum tíma. Íslendingar eru háðari innflutningi en flestar aðrar þjóðir. Höftin veita tímabundið skjól – hver veit hvað útlendingar væru tilbúnir að borga fyrir haftalausa krónu á opnum markaði?

Eins og staðan er núna erum við svo óralangt að finna lausn á þessum vanda – margir virðast reyndar telja nóg að berja höfðinu við steininn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“