Eigendur Fréttablaðsins og Stöðvar 2 – Jón Ásgeir, Ingibjörg, Ari Edwald og co – vilja ekki gefa upp hvaðan nýtt hlutafé í fjölmiðla þeirra kemur.
„Þér kemur það ekki við,“ sagði Jón Ásgeir um hlutafjáraukninguna við blaðamann Viðskiptablaðsins.
En fjölmiðlar sem við vitum ekki hverjir eiga eru eiginlega óhugsandi. Hlutverk fjölmiðla er einmitt að leita upplýsinga um svona hluti – sem sumir telja sig hafa hag af að halda leyndum.
Þetta grefur því alvarlega undan tilvist Fréttablaðsins og Stöðvar 2 – í rauninni ættu fréttamenn þar innandyra að setja allt á fullt að upplýsa hvaðan þetta hlutafé kemur áður en skaðinn verður meiri.
Annars er til dæmis hætt við að menn dragi þá ályktun að peningarnir komi til dæmis frá Tortólu.