fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Eyjan

Er ekki allt í lagi?

Egill Helgason
Laugardaginn 2. janúar 2010 23:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður á kannski ekki að ergja sig á svona, eða vekja á því athygli. En stundum er merkilegt að skyggnast inn í hugarfylgsn manna.

Friðbjörn Orri Ketilsson, einn af eigendum AMX, skrifaði á Facebook nýlega, um Hallgrím Helgason rithöfund:

Sóminn er sjálfstæðismanna og felst í að verja land og þjóð gegn árásum erlendra óvinaríkja. Ósóminn felst í að taka þátt í Icesave ánauðinni og fallast mótbárulaust á landráð nokkurra Íslendinga sem gert hafa verri samninga en Þýskalandi Hitlers bauðst eftir stríð.

Það var svo sem ekki við því að búast að landsþekktur ofbeldismaður sem réðst að lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra og lamdi bíl hans með hnefa afmyndaður af bræði geti skilið hvað það sé að hafa sómatilfinningu.“

Og í dag les maður á vefsíðu félaga hans, Gísla Freys Valdórssonar, sem er líka skríbent á AMX. Hann er að skrifa um Sigrúnu Davíðsdóttur sem hefur sýnt mikla elju í að grafa upp mál tengd bankahruninu erlendis:

Hrokaverðlaun ársins:
Á síðasta degi ársins ákvað hinn sami Óðinn Jónsson að heiðra skoðanasystir sína Sigrúnu Davíðsdóttur, „fréttaritara“ RÚV í Lundúnum fyrir áróðurspistla sína. Pistlana má lesa á bloggsíðu Egils Helgasonar, almannatengslafulltrúa RÚV.“

Ég meina, er ekki allt í lagi? Hvers konar heimssýn er þarna í gangi? Hvað ræða menn á ritstjórnarfundum hjá AMX – eftir að þeir felldu talið um hvað Eva Joly væri ómöguleg?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: EES og leiðin til aukinnar hagsældar

Björn Jón skrifar: EES og leiðin til aukinnar hagsældar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Séra Örn Bárður Jónsson: Ekki tilviljun að Norðurlöndin eru fremst – þjóðkirkjan er í lykilhlutverki

Séra Örn Bárður Jónsson: Ekki tilviljun að Norðurlöndin eru fremst – þjóðkirkjan er í lykilhlutverki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Áliðnaður framtíðarinnar er mættur – ætlum við aftur að selja auðlindirnar fyrir slikk?

Sigvaldi Einarsson skrifar: Áliðnaður framtíðarinnar er mættur – ætlum við aftur að selja auðlindirnar fyrir slikk?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Átti ekkert að verða bók – svo komu orðin og minningarnar

Karl Ágúst Úlfsson: Átti ekkert að verða bók – svo komu orðin og minningarnar