
Það er ljóst að í gangi er massíf áróðursherferð LÍÚ gegn breytingum á kvótakerfinu.
Mér barst til dæmis áðan fjölpóstur frá Samherja sem er sendur á mikinn fjölda sveitarstjórnarmanna á Norðurlandi, frá Húnavatnssýslu og austur á Húsavík, í nafni Útvegsmannafélags Norðurlands.
Þeir eru þar hvattir til að reyna að hafa „góð“ áhrif á stefnu stjórnvalda.
Yfirskrift fjölpóstsins er Áframhaldandi góð gjaldeyrisöflun er nauðsyn.
Ekki er minnst á skuldir úgerðarinnar í þessum pósti.