
Silfursþátturinn á sunnudag er eins konar afmælisþáttur.
Ég er ekki með dagsetningarnar alveg á hreinu, en það var um miðjan apríl 1999 að þessi þáttur fór fyrst í loftið á Skjá einum.
Þá var Skjárinn í eigu Hólmgeirs Baldurssonar, við vorum þarna tvö, ég og Vala Matt, en annars endursýndi stöðin aðallega gamla Dallasþætti. Annars voru það Guðbergur Davíðsson Sonja B. Jónsdóttir og Guðmundur Kristjánsson, sem þá starfræktu kvikmyndafélagið Nýja bíó, sem áttu hugmyndina.
Þeim fannst pólitíska umræðan á þessum tíma dauf.
Það var stillt upp nokkrum stólum og pottablómi og svo byrjaði þetta – það var fyrir kosningarnar þá um vorið.
Þátturinn hélt svo áfram um haustið og hafði þá fengið heitið Silfur Egils. Þá var Skjárinn kominn í hendur nýrra og metnaðarfullra eigenda og mikið fjör.
Nafnið hafði ég reyndar notað áður sem yfirskrift pistla sem ég skrifaði eitt sinn í Alþýðublaðið.
Silfrið var fjögur ár á Skjá einum, fjögur ár á Stöð 2 og er nú að ljúka öðrum vetrinum á Ríkisútvarpinu.
Þátturinn á sunnudag verður með hefðbundnu sniði, þ.e. ég á ekki von á að það verði neitt sérstakt til hátíðarbrigða.