
Aðalefnið í Kiljunni í kvöld er göngutúr um gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu með Guðjóni Friðrikssyni, þeim margfróða sagnfræðingi.
Þessi ferð okkar um garðinn verður sýnd í tveimur hlutum í þættinum, í fyrri hlutanum er einkum fjallað um þjóðskáldin sem hvíla í þar.
Við förum í heimsókn til Nönnu Rögnvaldsdóttir sem er fremst matreiðslubókahöfunda á Íslandi og hefur skrifað grundvallarrit um matreiðslu eins og Matarást og Matreiðslubók Nönnu – bækur sem eru algjörlega á heimsmælikvarða.
Bragi segir frá þeim stórkostlega söngvara og sérstæða mikilmenni Eggerti Stefánssyni.
Og Kolbrún og Páll eru auðvitað á sínum stað.