fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Mjúkmálir fjárglæframenn

Egill Helgason
Mánudaginn 2. mars 2009 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Exista, félagið hvers hlutur fór úr 40 í 0,02 á rúmu ári, á í viðræðum um endurskoðun lánasamninga og uppgjör gagnkvæmra krafna.

Þeir kunna að koma orðum að því þessir herramenn. Svona frétt þarf eiginlega að setja í gegnum sérstaka þýðingavél.

Samkvæmt Morgunblaðsfrétt skuldar Exista 255 milljarða króna, en þar af nema skuldir gagnvart íslenskum lánastofnunum 125 milljörðum.

Þegar talað er um uppgjör gagnkvæmra skulda er um að ræða gjaldeyrisskiptasamninga. Exista ásamt KB-banka, sem það átti stóran hlut í, og Kjalari, félagi Ólafs Ólafssonar, gekk harðast fram í að fella krónuna.

Í Moggafréttinni segir:

„Stærstur hluti krafna Exista byggir á vörnum félagsins á eigin fé gegn sveiflum í öðrum myntum gagnvart uppgjörsmynt félagsins, evru

Með þessu móti gátu þessi félög sýnt þokkalega stöðu – tímabundið – en til lengdar var þetta eins og pissa í skóinn sinn til að halda á sér hita.

Og þetta sýnir að í aðdraganda hrunsins var það orðinn einn helsti atvinnuvegur á Íslandi að braska með gjaldeyri. Hreinræktuð stóriðja.

Helstu dótturfélög Exista á Íslandi eru VÍS, Síminn og Lýsing – sem væntanlega eru í höndum ríkisins nema Existamenn fái sérstöku fyrirgreiðsluna sem þeir óska eftir.

Í sömu frétt í Fréttablaðinu stendur að staða Exista sé óljós. Það er varfærnislega orðað, því fyrirtæki með svona skuldabagga er auðvitað gjaldþrota. Það rekur einhvers staðar á milli lífs og dauða og í rauninni zombie-fyrirtæki, eða svefngenglafyrirtæki eins og Gauti B. Eggertsson hagfræðingur orðaði það í Silfrinu fyrir viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi