fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Skortur á tiltrú

Egill Helgason
Mánudaginn 4. maí 2009 15:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég held að Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafi mislesið stöðuna þegar þau héldu að ekkert lægi á að mynda nýja ríkisstjórn.

Margir Íslendingar voru nálægt því að missa móðinn þegar þeir sáu upphæðirnar á greiðsluseðlum sínum um mánaðarmótin. Rauntekjurnar lækka hratt, verðlagið í búðunum er fjarstæðukennt.

Fyrir utan vandræði þeirra sem hafa misst vinnuna.

Það eru liðnir sjö mánuðir síðan hrunið var. Fyrst höfðum við sjálfa hrunstjórnina, aðgerðaleysi hennar og verkkvíða, svo kom minnihlutastjórn í þrjá mánuði og gat eðli málsins samkvæmt ekki gert margt – og nú er enn beðið ríkisstjórnar sem tekur á málunum.

Einhverjir urðu móðgaðir þegar ég sagði að ég hefði haft lítinn áhuga á kosningunum og að ég skynjaði þetta áhugaleysi víðar. En sem ég talaði við voru óráðnir um hvað þeir ættu að kjósa, traust og áhugi hefðbundinni flokkapólitík var algjöru lágmarki fyrir kosningarnar. Fréttamenn og flokksfólk voru kannski á öðru máli, en sá aragrúi fólks sem finnur ekki til neinnar sérstakrar flokkshollustu var fyrst og fremst ringlaður.

Kosningvikuna sjálfa myndaðist smá spenna, jú, þjóðin tók þátt og fylgdist með, en nú finnst manni eins og vonleysi, pirringur og gremja séu að grípa um sig. Eins og kosningarnar hafi bara verið stutt pása.

Fólk bíður úrbóta, en hefur ekki sérstaka trú á að þeira sé að vænta. Það þarf ekki að vera langt þangað til sýður upp úr aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 klukkutímum
Skortur á tiltrú

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann