fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Er þjóðareign ekki til?

Egill Helgason
Föstudaginn 17. apríl 2009 11:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhver furðulegasta staðhæfing í stjórnmálaumræðum hérlendis er sú fullyrðing að ekkert geti verið í þjóðareign

Þetta er notað í umræðum um sjávarauðlindina – sem fyrir nokkrum áratugum var afhent fámennum hópi fólks, nánast til eignar.

Nokkrir lögfræðingar hafa komist upp með að halda því fram að þjóðareign sé ekki til – og þetta hefur jafnvel orðið sjónarmið heils stjórnmálaflokks.

Venjulegt fólki, sem þekkir ekki lagakróka, skilur þetta ekki. Við höfum reyndar lifað í samfélagi þar sem lögfræðingar hafa alltof lengi komist upp með að teygja og toga hlutina – þar sem lagakrókar hafa fengið hærri sess en heilbrigð skynsemi.

Hvað með handritin fornu, Þingvelli og aðra þjóðgarða, stofna hreindýra og rjúpu sem eru nytjaðir, þjóðvegina – sem beinlínis heita því nafni?

Er þetta ekki þjóðareign?

Og ef finnst til dæmis olía undan ströndum Íslands, verður hún þá ekki þjóðareign?

Eða ætlum við að afhenda hana útvöldum?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“