fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Landsbankafélag leyst upp í Lúx án umboðs skilanefndarinnar?

Egill Helgason
Laugardaginn 21. mars 2009 10:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Davíðsdóttir flutti þennan pistil í Speglinum á RÚV í gær.

— — —

Landsbankinn stofnaði dótturfélög í Lúxemborg sem ekki koma fram í ársskýrslu bankans. Eitt þessara félaga var leyst upp í nóvember af lögfræðingi sem ekki var fulltrúi skilanefndar bankans.

Nereiður er vættur úr grískri goðafræði – en þetta er einnig nafn á félagi sem Landsbankinn átti í Lúxemborg. Af einhverjum ástæðum var félagið ekki skráð sem eign bankans í ársskýrslum hans. Félagið var leyst upp nú í nóvember af lögfræðingi sem vann áður hjá Landsbankanum í Lúxemborg en var ekki á vegum skilanefndar bankans. Það er óljóst hvert féð rann – í þessu félagi höfðu verið verðmæti sem metin voru á 36,7 milljarða króna.

Meginregla er að ársskýrsla gefi skýra mynd af starfsemi viðkomandi hlutafélags. Ef litið er á umsvif Landsbankans í Lúxemborg virðist vera að þar hafi verið stofnuð eignarhaldsfélög á vegum bankans en sem af einhverjum ástæðum eru ekki inni í ársskýrslum bankans þrátt fyrir að þar hafi verið umtalsverðar fjárhæðir.

LI Investments var eignarhaldsfélag í eigu Landsbankans, skráð í Svíþjóð. Árið 2006 stofnaði það félag, ásamt Landsbanka Íslands hf félag í Lúxemborg sem hét Nerée. Landsbankinn greiddi tvær evrur af þeirri milljón evra sem hlutaféð var, sænska félagið greiddi afganginn. Auk þess lagði sænska félagið inn franskt félag, sem var metið á 145 milljónir evra. Verðmætið í félaginu var því milljón evra að viðbættum þessum 145 milljónum, samtals um 36,7 milljarðar króna.

Samkvæmt franskri fyrirtækjaskrá var stjórnandi franska félagsins lögfræðingur sem vann hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Félagið var því greinilega tengt Landsbankanum áður en það var fært inn í Lúx-félagið. Franska félagið var skráð á sama heimilisfang og annað félag sem einnig hefur verið fært inn í Landsbankafélag í Lúxemborg. Starfsmaðurinn sat svo einnig í stjórn Nerée. Í stjórninni sat einnig íslenskur lögfræðingur sem starfaði hjá Landsbankanum.

Af þeim gögnum sem Spegillinn hefur í höndunum kemur ekki fram hvert hlutverk Nerée var. Endurskoðandi sem Spegillinn hefur borið þetta undir áleit að félag af þessu tagi ætti eðlilega að vera skráð í ársskýrslu bankans sem dótturfélag. Sama væri með önnur félög af þessu tagi. Þannig voru bankastjórar Landsbankans í stjórn félags sem er heldur ekki skráð í ársskýrslum bankans. Það félag hét Prometheus, annað félag innblásið af grísku goðafræðinni.

Það eru fleiri félög í Lúxemborg í eigu Landsbankans þar sem frönsk félög hafa verið lögð inn sem eign. Í einu tilfellinu hefur verið lagt þar inn félag skráð á sama franska heimilisfangið og tengist einni af flóknari eignatilfærslufléttum Novators. Novator er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar sem var ásamt föður sínum Björgólfi Guðmundssyni stærsti hluthafi Landsbankans.

En sagan af Nerée er ekki öll. Núna í byrjun nóvember var Nerée lokað. Í skjölum í Lúxemborg kemur fram að þegar félagið var leyst upp var eigandi aðeins einn: Landsbanki Íslands hf. Eins og kunnugt er var Landsbankinn þá kominn í þrot og skilanefnd hafði tekið yfir mál bankans. Landsbankinn í Lúxemborg var kominn í meðferð hjá skilanefnd í Lúxemborg.

Sá sem mætti á vegum Landsbankans hf til að loka Nerée var lögfræðingur að nafni Prune Callot. Samkvæmt skjölum um lokun félagsins mætir hún með umboð frá Landsbankanum hf, með kennitölu gamla bankans. Þegar Spegillinn spurði Callot hvaða félag Nerée hefði verið sagði hún fyrst að það hefði verið félag í eigu Landsbankans, dró svo þá lýsingu til baka. Sjálf hefði hún starfað fyrir Landsbankann í Lúxemborg. Þegar henni var bent á að Landsbankinn hf sem hún hefði haft umboð fyrir hefði verið kominn í þrot sagðist hún ekkert vilja um málið segja og þá heldur ekki hver hefði beðið hana um að mæta fyrir Landsbankann hf né heldur hvert féð í félaginu hefði runnið. – Samkvæmt heimildum Spegilsins mun lögfræðingurinn ekki hafa mætt á vegum skilanefndar Landsbankans hf.

Bankastarfsemi nútímans er orðin svo flókin og hátimbruð að það er ekki auðvelt fyrir óinnvígða að rýna í hreyfingar þar. Það virðist þó vera að Landsbankinn hafi átt félög í Lúxemborg sem ekki koma fram í ársskýrslum bankans. Og það er einnig eins og að félag í eigu Landsbankans hf hafi verið leyst upp af einhverjum sem ekki var með umboð skilanefndarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki