

Einar Kárason er aðalgesturinn í Kiljunni í kvöld. Einar fékk nýskeð Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsögu sína Ofsa. Hann er einnig að skemmta fólki með sagnalist sinni í Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Ég leyfi mér að halda því fram í þættinum að hann sé á hátindi ferils síns.
Einar ræðir um skáldskap sinn, Sturlungu, ríkidæmi og menningu á Vesturlandi á ofanverðri þjóðveldisöld og setur fram kenningu um höfund Njálu.
Davíð Stefánsson segir frá bók sinni Tvískinnu en þar er gerð tilraun til að skyggnast bak við tungumálið og skilaboðin sem er haldið að okkur í auglýsingum, fjölmiðlaumræðu og stjórnmálum.
Við kynnumst ágætum hljóðbókavef sem nefnist hlusta.is.
Páll og Kolbrún ræða um skáldsögurnar Tilræðið og Þjófaborg – og líka um bækur sem fólk þykist hafa lesið.
En Bragi segir frá þeim merka stjórnmálamanni, ritstjóra og sósíalista Magnúsi Kjartanssyni sem skrifaði fræga pistla í Þjóðviljann undir nafninu Austri.