
Í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík fá þátttakendur í prófkjöri að velja á milli Illuga Gunnarssonar og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í fyrsta sætið.
Aðrir hafa ekki gefið sig fram í það. Þannig að aðrir koma ekki til greina.
Í Samfylkingunni í Reykjavík er fyrsta sætið frátekið fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur. Ingibjörg Sólrún gaf það eftir og er ein í framboði í annað sætið.
Össur er svo einn í framboði í þriðja sætið.
Enginn virðist ætla að leggja í þessa gömlu forystumenn úr flokknum.
Nema Jón Baldvin sem mér skilst að bjóði sig fram í 1.-8. sæti. Jú og gamli byltingarsinninn Pétur Tyrfingsson.
Svo kemur hópur sem býður sig fram í fjórða sætið. Helgi Hjörvar, Ásta Ragnheiður, Mörður og Skúli Helgason.
Þetta boðar varla mikla endurnýjun í flokknum.