
Þetta eru merkilegar niðurstöður úr skoðanakönnun MMR, en þar er spurt um traust til stjórnmálamanna.
Umhugsunarefni fyrir Samfylkinguna er að Jóhanna nýtur langtum meira trausts en Ingibjörg Sólrún.
Getur verið að Samfylkingin verði að tefla Jóhönnu fram ef hún ætlar að ná árangri í kosningunum í vor?
Ólafur Ragnar Grímsson nýtur traust innan við þriðjungs þjóðarinnar.
Ég efast um að forseti hafi fyrr verið í þeirri stöðu á Íslandi.
Og aðeins tíu prósent segjast treysta Davíð Oddssyni. Það er nokkuð í samræmi við fyrri mælingar á því áliti sem hann nýtur.