fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Þungavigtargrein Illuga og Bjarna

Egill Helgason
Þriðjudaginn 26. febrúar 2008 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmennirnir Illugi Gunnarsson og Bjarni Benediktsson skrifa ágæta grein í miðopnu Moggans í dag – algjöra þungavigt – mikilvægið er slíkt að blaðið slær henni upp á forsíðu.

Illugi og Bjarni segja að nauðsynlegt sé að grípa strax til aðgerða vegna bankanna. Það þurfi að efla Seðlabankann og Fjármálaeftirlit, lækka skatta á fyrirtæki í 12 prósent, taka ríkið mestanpart út af íbúðalánamarkaði, en um leið kalla þeir eftir aukinni ábyrgð stjórnenda fjármálafyrirtækja.

Allt er þetta gott og blessað, sumt umdeilanlegra en annað. Sérstaklega þetta um íbúðalánasjóð – bankarnir hafa varla sýnt að þeim sé treystandi fyrir íbúðalánum.

Í greininni segir líka að umræða um ESB og evru sé „flótti frá því verkefni sem við stöndum nú frammi fyrir“.

Þetta er kannski full einfalt.

Eiga stjórnmálamenn þá bara að hugsa um aðsteðjandi vanda, skammtímasveiflur – eða eiga þeir kannski að horfa lengra fram veginn en þetta eitt til tvö ár? Við erum varla svo vitlaus að við getum ekki tekist á við yfirvofandi kreppuástand og hugleitt evru og ESB í leiðinni.

Sem kunna að vera partur af lausninni – þegar til lengri tíma er liðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“