fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Framsókn endanlega að þurrkast út í Reykjavík

Egill Helgason
Föstudaginn 25. janúar 2008 21:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framsóknarflokkurinn er í andarslitrunum í Reykjavík.

Björn Ingi er farinn. Anna Kristinsdóttir er farin. Guðjón Ólafur Jónsson er persona non grata í flokknum. Ásrún Kristjánsdóttir er líka hætt. Jónína Bjartmarz er í Kína. Jón Sigurðsson staldraði stutt við í pólitík. Finnur er horfinn, Árni Magnússon líka. Halldór Ásgrímsson er í Köben.

Af fjórum efstu frambjóðendum í síðustu borgarstjórnarkosningum eru tveir farnir. Af fjórum efstu frambjóðendum í Reykjavík norður og suður í alþingiskosningunum er aðeins einn sem má telja fúnkerandi flokksmann: Sæunni Stefándsóttur, ritari Framsóknar.

Flokkurinn á engan alþingismann í borginni, en í borgarstjórninni sendur Óskar Bergsson einmana vaktina.

Það virðist heldur ekkert nýtt fólk ætla að koma og rífa flokkinn upp – og varla líklegt í þessu ástandi.

Kannski er of seint fyrir flokkinn að fara í naflaskoðun og leita að ástæðunni fyrir þessu. Formaður flokksins er þó enn við gamla heygarðshornið og reynir að kenna fjölmiðlum um – svona líkt og á tímanum þegar Framsókn kenndi DV um allar ófarir sínar og vildi helst banna blaðið.

Nú á ég að bera ábyrgð á innanflokksátökum sem birtast í orrahríðinni milli Guðjóns Ólafs og Björns Inga. Þar er rétt að taka fram að ég vissi ekki fyrr en í lok síðustu viku að þeir gömlu félagarnir væru ekki lengur vinir. Þangað til hélt ég að þeir væru nánir pólitískir samherjar.

Guðjón Ólafur kom svo í viðtal í Silfur Egils. Ég átti hálfpartinn von á því að hann myndi bera klæði á vopnin, reyna að draga eitthvað í land með ásakanir sínar á hendur Birni Inga. Þegar hann bætti fremur í varð ég jafn undrandi og aðrir.

Hún er heldur brött sú krafa formanns Framsóknar að ég hefði átt að stöðva manninn þegar hann var að ljóstra upp um heiftarleg átök innan stjórnmálaflokks. Allt í allt var viðtalið ekki langt, rétt um tíu mínútur – safaríki kaflinn er aftast.

Varðandi Björn Inga þá tel ég að ákvörðun hans um að hverfa úr pólitík sé rétt. REI-málið og þessi uppákoma með fatnaðinn hefði orðið honum fjötur um fót í öllu pólitísku starfi. Hvenær sem er hefðu pólitískir andstæðingar – eða samherjar – getað nuddað honum upp úr þessu. Það hefði verið óþolandi staða fyrir hann.

En ég á alveg eins von á að Björn Ingi snúi aftur. Kannski í einhverjum öðrum flokki – Össur bauð honum í Samfylkinguna. Hann ætti að hafa ýmis tækifæri að lokinni hinni sjálfskipuðu pólitísku útlegð.

Og þá verður hann laus við REI og þetta fatakaupamál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann