fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
Eyjan

Hinsta öld mannkyns í Silfri

Egill Helgason
Fimmtudaginn 31. mars 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Silfri Egils á sunnudaginn verða meðal annars umræður um bókina Our Final Century eftir breska vísindamanninn Martin Rees. Í pistli sem ég skrifaði um þessa bók fyrir nokkru sagði:

Ekki beinlínis bók sem eykur manni bjartsýni. Martin Rees telur um það bil helmingslíkur á að mannkynið komist í gegnum þessa öld án þess að verða fyrir meiriháttar katastrófu. Samkvæmt honum er heimsendir jafnvel í kortunum. Hætturnar eru ýmsar: Kjarnorkusprengjur í höndum hryðjuverkamanna, sýklar sem sleppa út af rannsóknarstofum eða er sleppt af ásettu ráði, fikt við erfðaefni, tölvur sem fara að hugsa sjálfar og taka völdin, nanótækni sem menn missa tökin á, eðlisfræðitilraunir sem hafa ófyrirséðar afleiðingar, gróðurhúsaáhrif, loftsteinn sem rekst á jörðina.

Martin Rees verður heldur ekki afgreiddur sem rugludallur – eða það skyldi maður ekki ætla. Hann er Sir, prófessor við háskólann í Cambridge, sérfræðingur í geimvísindum og höfundur fjölda bóka. Þetta virkar altént ekki eins og neinn vísindaskáldskapur, heldur er meginkenning Rees að við séum að taka alltof mikla og margvíslega áhættu með jörðina og framtíð mannkyns. Hann vegur saman hætturnar og líkur á framförum og spyr hvaða áhætta sé réttlætanleg í vísindum? Þarf kannski að hafa meira eftirlit með vísindamönnum og uppgötvunum þeirra – og er það yfirleitt hægt? Tekst ekki alltaf einhverjum að svindla sér undan slíku eftirliti?

Bókin er auðveld aflestrar, líka fyrir þá sem hafa enga teljandi vísindaþekkingu, en manni verður ekki um sel við lesturinn.

Á forsíðu Silfurs Egils

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þessir fokking baráttudagar kvenna

Nína Richter skrifar: Þessir fokking baráttudagar kvenna