fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
Eyjan

Leyniþjónusta Styrmis

Egill Helgason
Laugardaginn 26. nóvember 2005 15:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hann er stundum einkennilegur stíllinn sem Styrmir Gunnarsson hefur. Hann mótmælir þeim orðum forseta Íslands að Staksteinar séu nafnlaus dálkur. Það eru þeir ekki, segir hann, vegna þess að þeir eru á ábyrgð ritstjórnar. Einmitt. En hafa ekki öll blöð á Íslandi ábyrgðarmenn, stendur ekki í lögum að svo eigi að vera?

Þannig eru líklega ekki til neinir nafnlausir dálkar í blöðunum – ef marka má Styrmi.

— — —

Og Styrmir er alltaf að gefa skilaboð um svo margt sem hann veit – en segir þó ekki frá.

Tónninn er á þessa leið:

Ég veit margt merkilegt sem aðrir vita ekki, en ég kýs að láta það ekki uppi. Og þó, kannski segi ég frá ef ég fæ nógu margar áskoranir. En samt ekki. Nema ef ég neyðist til þess. Þá gæti verið að ég leysti frá skjóðunni.

Svo mjatlar Styrmir einhverju smátt og smátt út, en vegna þess að leynipukrið er svo mikið verður það óskiljanlegt fyrir almenna lesendur blaðsins. En það skiptir kannski ekki máli Ritstjórinn er bara að senda örfáum mönnum skilaboð – láta þá vita að hann viti.

Þannig er það til dæmis með skrif í Staksteinum undanfarið um Ólaf Ragnar Grímsson og för hans til Mónakó. Styrmir spyr hvort hann ætti ekki heldur að fara til Tortillaeyja í Karíbahafi?

Ha? Hvað er hér á seyði? Hvað veit Styrmir nú sem við hin vitum ekki? Á Ólafur Ragnar einhver ítök á þessum fjarlægu eyjum? Eða kannski Dorrit? Eða er verið að ýja að því að forsetinn sé í vondum félagsskap einhverra sem halda þarna til?

Af hverju er ekki skýrt frá þessu í fréttum Morgunblaðsins – eða er það einkamál leyniþjónustunnar sem Styrmir virðist reka til hliðar við sitt fasta djobb?

— — —

Og má þá ekki eins spyrja, með sama hætti og Styrmir – án þess að gefa of mikið upp – hvort ekki sé slæmt að vera í slagtogi við þá sem hafa sitt dót á Kýpur?

— — —

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir kallar þá presta sem eru ófúsir til að gefa saman samkynhneigð pör afturhaldsseggi á heimasíðu sinni. Nú ættu menn ættu aðeins hægja á sér. Ég er kominn af kristnu fólki, leyfi mér að kalla það gott fólk og guðrækið. Yfirleitt er það líka umburðarlynt í skoðunum. Dæmir helst ekki aðra. En ég veit að sumt af því mundi eiga mjög erfitt með að sætta sig við að samkynhneigðir giftist í kirkjum.

Þetta er ekki vegna afturhalds, heldur aðallega sökum þess að viðhorfin til þess sem þykir gott og gilt hafa breyst með ógnarhraða. Sá sem hefði talað um kirkjubrúðkaup samkynhneigðra fyrir þrjátíu árum hefði verið álitinn ruglaður.

Guðrún Ögmundsdóttir, flokkssystir Ástu, leggur til að hjónabandið verði skilgreint upp á nýtt sem samband tveggja einstaklinga en ekki bara karls og konu. En af hverju bara tveggja? Hvers á fjölkvænisfólk að gjalda?

Fyrst birt: 26. nóv. 2005 14:27

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sorg þeirra er okkar sorg

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sorg þeirra er okkar sorg