fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
Eyjan

Jón Ormur, Össur, Björn og Steingrímur

Egill Helgason
Föstudaginn 29. apríl 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða Jón Ormur Halldórsson, Össur Skarphéðinsson, Steingrímur J. Sigfússon, Björn Bjarnason, Dagur B. Eggertsson, Margrét Frímannsdóttir og Hjálmar Árnason.

Fleiri gestir eiga svo eftir að bætast við áður en þátturinn er sendur út.

Jón Ormur ætlar að koma til að ræða um nýju risana í viðskiptalífi heimsins, Kína og Indland, einkum þó Kína. Skoðuð verður staða þessara ríkja í ljósi hnattvæðingarinnar, framleiðslan sem er að flytjast þangað, hvaða áhrif það hefur á Vesturlönd, aukin eftirspurn þeirra eftir olíu og ýmsum varningi og hvernig alþýðu í þessum löndum hefur reitt af í þessum breytingum.

Össur mun leggja mér lið í að spá og spekúlera í kosningunum í Bretlandi sem fara fram í næstu viku, en Össur stundaði háskólanam í Bretlandi og er manna froðastur um bresk stjórnmál.

Í þættinum verður einnig einblínt á skipulagsmál í Reykjavík eftir að ákveðið hefur verið að Háskólinn í Reykjavík fái stað í Vatnsmýrinni, rétt við Reykjavíkurflugvöll.

Í fyrsta hluta þáttarins verður svo farið yfir veturinn í pólitíkinni og velt vöngum yfir því hvað hafi staðið upp úr. Auk þess verður litið á nokkur mál sem hæst ber í fréttum þessa stundina.

Þátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 klukkan 12 á sunnudag. Hann er svo endursýndur síðla um kvöldið en einnig er hægt að sjá hann hér í Veftívíinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Mikilvægt að styðja við verðsamkeppni – hefur áhrif á allan markaðinn

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Mikilvægt að styðja við verðsamkeppni – hefur áhrif á allan markaðinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sólveigu Önnu brugðið eftir viðtal við Heiðu borgarstjóra – „Einstaklingar sem að sækjast eftir miklum völdum verða að geta axlað mikla ábyrgð“

Sólveigu Önnu brugðið eftir viðtal við Heiðu borgarstjóra – „Einstaklingar sem að sækjast eftir miklum völdum verða að geta axlað mikla ábyrgð“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin