fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Gúrkutíð og áhugaverð netverslun

Egill Helgason
Föstudaginn 29. október 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhverja áhugaverðustu netverslun sem ég hef séð lengi er að finna á vef Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Þarna er að getur að líta ýmislegan varning sem hentar vel til gjafa – ef maður tímir þá að gefa svona fínerí.

Þar má benda á flestalla sjónvarpsþætti sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur gert, boli með mynd af Thatcher, leðurmöppur, könnur, íþróttatöskur og derhúfur með merki Sjálfstæðisflokksins, Top Flite golfkúlur einnig með merki flokksins, úrval úr ræðum Ólafs Thors og svo hið sígilda rit Uppreisn frjálshyggjunnar.

Það er greinilega kraftur í starfinu hjá SUS-urum.

— — —

Er ekki hálfgerð gúrka þessa dagana? Ég skrifaði einhvern tíma grein um þetta fyrirbæri, gúrkutíð. Orðið er náttúrlega komið úr dönsku – "gurketid". Þangað úr þýsku – þar mun einhvern tíma hafa verið talað um "Sauere-Gurkenzeit". Ég hef reyndar spurt Þjóðverja hvort þeir kannist við það – en þeir hafa ekki hugmynd. Á Íslandi væri líklega réttara að tala um bláberjatíðina – þann tíma þegar fjölmiðlarnir fara að birta fréttir um berjasprettu.

En það er fremur dauft um að litast í fréttunum. Þingmenn eru enn einu sinni komnir í frí og svo eru margir þeirra á leið á þing Norðurlandaráðs. Ég geri ekki ráð fyrir miklum tíðindum þaðan. Það hefur svo til ekkert komið út úr þinginu í haust. Ekkert heldur að frétta af kennaraverkfalli næstu vikuna. Kannski er allt svona rólegt eftir að nýji forsætisráðherrann tók við. Hann er ekki týpan sem vill rugga bátnum. Davíð er í veikindafríi – og það er eins og mann vanti einhverja spennu.

Jú, hlutabréfamarkaðurinn pompaði aðeins. En það vissu allir að það myndi gerast, svo kannski voru það ekki svo mikil tíðindi. Svo keypti Og Vodafone Norðurljós (sem eiginlega voru hætt að heita Norðurljós), en áður höfðu Norðurljós keypt Og Vodafone. Varla furða þó maður skilji ekki neitt í neinu.

Maður horfir náttúrlega vestur til Bandaríkjanna, til kosninganna þar. Það er háð hörð barátta um lykilríkin sem sveiflast milli flokkanna. Hér er ansi góð lítil grein um kosningabaráttuna í Ohio. Höfundurinn, Örn Arnarson, spáir Kerry sigri af því hann býður upp Bruce Springsteen og Natural Lite bjór í tonnatali.

Ég skrifaði grein um kosningarnar sem birtist í DV á morgun. Fjallaði aðallega um tengsl Kerrys við Frakkland og náfrænda hans þar, græningjann og fyrrum 68-róttæklinginn Brice Lalonde. Þetta er náungi sem ég hitti fyrir tíu árum í París.

— — —

Bendi svo á tvær áhugaverðar greinar sem birtast hér neðst á síðunni. Önnur er eftir Gauta Kristmannsson, athugasemd við skrif mín um Hannes og Halldór Laxness. Hin er eftir Hallgrím Helgason og er athugasemd við athugasemd sem Ólafur Teitur Guðnason gerði við orð sem Hallgrímur lét falla í Silfri Egils.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi