fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025

Lærðu þessi fimm atriði og bjargaðu mannslífi

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 10. september 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kannt þú að bregðast við ef þú kemur að slysi, ef einhver nálægt þér hnígur niður með hjartaáfall eða barn nær ekki andanum eftir að hafa gleypt smáhlut? Auðvitað er lykilatriði að hringja alltaf í 112 eftir aðstoð, en það er mikilvægt að veita einnig skyndihjálp þar til fagfólk mætir á staðinn. Það getur skipt öllu varðandi það hvort viðkomandi nái sér að fullu eða ekki. Þess vegna er mikilvægt að kunna réttu handtökin og helst sækja skyndihjálparnámskeið hjá Rauða krossinum ef kostur gefst. Byrjaðu á því að læra þessi fimm atriði og þú gætir bjargað mannslífi.

Lærðu hjartahnoð og á hjartastuðtæki

Þetta tvennt er það mikilvægasta sem þú getur lært þegar kemur að því að bjarga mannslífum. Fjöldi fólks fær hjartaáfall á hverju einasta ári og í flestum tilfellum gerist það í heimahúsum. Að veita einhverjum hjartahnoð í þeim aðstæðum, þar til að sjúkrabíll kemur á staðinn, getur þrefaldað lífslíkur viðkomandi. Hjartastuðtæki eru á mörgum opinberum stöðum eins og sundlaugum og íþróttahúsum en þau gera ekki mikið gagn nema vera notuð rétt. Það er því mikilvægt að læra á slík tæki.

Stöðvaðu blæðingu rétt

Margir halda að þegar mikil blæðing á sér stað, þá eigi að reyna að loka æðinni sem blæðir úr með einhverjum hætti, en það er ekki rétt. Mikilvægt er að þrýsta vel á sárið og lyfta upp þeim líkamshluta sem blæðir úr, helst þannig að sárið sé ofar en hjartað. Best er að þrýsta á sárið með sótthreinsaðri grisju eða sárabindi, en ef það er ekki við höndina má nota handklæði eða létta flík, eins og stuttermabol.

Ekki færa slasaða einstaklinga

Það getur gert illt verra ef slasaðir einstaklingar eru færðir til á slysstað. Fólki gengur að sjálfsögðu vel til og vill reyna að láta þeim slasaða líða betur með því að koma honum á þægilegri stað. En slíkar tilfæringar geta valdið miklum skaða. Þess vegna er mikilvægt að hafa þá lykilreglu að leiðarljósi að hreyfa aldrei slasaða úr stað nema augljós hætta sé yfirvofandi, eins og eldsvoði eða drukknun, ef ekkert er að gert.

Lærðu rétt „bakhögg“

Nú er frekar mælt með því að nota bakhögg-aðferðina heldur en Heimlich-takið ef einhver er að kafna. Allavega til að byrja með. Beygðu viðkomandi fram og sláðu fimm sinnum ákveðið á milli herðablaðanna með neðsta hlutanum af lófanum. Ef það virkar ekki gríptu þá til Heimlich-taksins. Stattu fyrir aftan viðkomandi, haltu hnefunum saman fyrir ofan naflasvæðið og þrýstu upp á við fimm sinnum.
Þetta skal endurtaka þar til aðskotahluturinn losnar úr hálsinum, eða þar til viðkomandi missir meðvitund. Þá þarf að grípa til hjartahnoðs.

Ef um er að ræða ungbarn, undir eins árs, skal barnið lagt á grúfu yfir framhandlegginn, þannig að andlitið sé í lófa þínum og höfuðið vísi niður. Sláðu fimm sinnum á milli herðablaðanna og snúðu barninu svo við og þrýstu snöggt með tveimur fingrum allt að fimm sinnum á miðjan brjóstkassann.

Hafðu asprín við höndina

Þegar einstaklingur fær hjartaáfall getur verið gott fyrir viðkomandi að taka inn asprín því það er blóðþynnandi og getur komið í veg fyrir að frekari stífla myndist í æðunum. Best er þó að ráðfæra sig við neyðarlínuna áður en asprín er gefið en það tekur mjög skamman tíma að virka ef viðkomandi tyggur töfluna.

Birtist fyrst í DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Þurfa að borga 172 milljónir punda til að forðast fall

Þurfa að borga 172 milljónir punda til að forðast fall
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum
Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Hótel Íslands vel skreytt á meðan dvölinni stendur

Hótel Íslands vel skreytt á meðan dvölinni stendur
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Dæmdur í fangelsi og laug að kornungum syni sínum: Skólabróðir færði honum fréttirnar – ,,Það var auðvelt að ljúga“

Dæmdur í fangelsi og laug að kornungum syni sínum: Skólabróðir færði honum fréttirnar – ,,Það var auðvelt að ljúga“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Opna Múmínhúsið í Kjarnaskógi formlega – Viðræður við rétthafa gengið vel

Opna Múmínhúsið í Kjarnaskógi formlega – Viðræður við rétthafa gengið vel
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Pogba grínaðist í blaðamönnum með öruggt sæti í landsliðinu

Pogba grínaðist í blaðamönnum með öruggt sæti í landsliðinu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ástþór í hatrömmum deilum við meintan svikahrapp vegna gluggaviðskipta – Skrautlegar ófrægingarherferðir á báða bóga

Ástþór í hatrömmum deilum við meintan svikahrapp vegna gluggaviðskipta – Skrautlegar ófrægingarherferðir á báða bóga

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.