Sænski bloggarinn og Instagramstjarnan Maxinne Björk birti um helgina mynd af sér þakta í tíðablóði. Myndin hefur vakið mikil viðbrögð og verið fjallað um hana á ýmsum miðlum. Björk er óhrædd við að birta ögrandi myndir eða nota miðilinn til að tjá sig um heiminn, sína líðan á myndrænan hátt. Af Instagram reikningi hennar að dæma lætur hún umtal ekki hafa nein áhrif.
„Í dag, eftir erfiðan en skemmtilegan dag, kom ég heim full af tilfinningum sem ég ýtti til hliðar. Ég settist niður og andaði djúpt. Skyndilega fékk ég þörf fyrir að þekja mig í kvenlega vökvanum. Þannig að, án þess að hugsa neitt um það, þá bara gerði ég það,“ segir Björk á Instagram.
„Ég makaði tíðablóðinu yfir mig alla og velti mér um í grasinu úti í garði.“
Björk er með yfir 40 þúsund fylgjendur á Instagram. Hefur myndinni eins og áður segir verið tekið á ansi misjafnan hátt af aðdáendum hennar. Segja sumir þetta „ógeðslegt“ á meðan aðrir þakka henni fyrir. Notandinn Feminism for All segir:
„Ég er góður femínisti. Að þekja þig í líkamsvessum, velta þér um í grasinu, gráta og hlægja svo eins og vitleysingur er ekki styrkjandi eða neitt slíkt, þetta er bara ógeðslegt og sorglegt.“
Fjölmargir verja Björk og segir einn notandi hana magnaða og sterka konu. Annar notandi samfélagsmiðilsins segir:
„Leyfðu henni að lifa sínu lífi eftir sínu höfði. Þú hefur engan rétt til að reyna að stjórna henni. Og hefur þetta í rauninni áhrif á þig? Svarið er nei og þar af leiðandi kemur þér þetta ekki við!“