Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var sagður hafa beitt sér í deilum Önnu við föður sinn


Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, upplýsti á Facebook í síðustu viku að hún ætti 1200 milljónir króna í aflandsfélaginu Wintris sem er vistað á Bresku jómfrúreyjunum.
Þar upplýsti hún að féð hefði hún fengið í arf frá föður sínum, sem er enn á lífi, en Anna Sigurlaug stefndi honum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur árið 2006 til þess að fá fyrirframgreiddan arf.
Stundin ljóstrar því upp að málið hefði verið komið svo langt í réttarkerfinu að það var komið með málsnúmer.
DV greindi fyrst frá deilunum um arfinn árið 2012, en Anna Sigurlaug var yngsti milljarðamæringur landsins á þeim tíma.
Deilurnar sem um ræðir voru í raun opinbert leyndarmál. Þannig sagði sagan að Anna Sigurlaug hefði fundist hún vera sniðgengin og að hún hafi átt erfitt með að horfa á bróður sinn, Boga Pálsson, fá traust og tækifæri og hagnast verulega á meðan hún sat sjálf hjá.
Hún hafi viljað fá persónulega hlutdeild í auðæfunum sem bróðir hennar hafði aðgang að um árabil.
Í grein DV sagði að Bogi hefði verið tiltölulega ungur að árum þegar hann varð forstjóri P. Samúelssonar, en hann hætti sem forstjóri árið 2003 og einbeitti sér í kjölfarið að fjárfestingum. Hann hafði því ungur komist í ábyrgðarstöðu innan fjölskyldufyrirtækisins og átti þátt í að ávaxta eignir fjölskyldunnar vel á árunum eftir einkavæðingu bankanna.
Strax árið 2003 keypti tryggingafélagið Sjóvá 24 prósenta hlut í móðurfélagi P. Samúelssonar sem var þá sagt metið á 2,2 til 3 milljarða króna.
Hluturinn hafði verið í persónulegri eigu Boga sem svo seldi hann til föður síns sem svo seldi hlutinn til Sjóvár. Bogi gerði því vel fyrir fjölskylduna og stýrði eignum hennar í rétta átt. Stóra salan kom svo árið 2005 þegar P. Samúelsson var selt til Magnúsar Kristinssonar og fjölskyldan átti allt í einu milljarða.
Deilurnar um auðævin voru harðar og reyndu mjög á fjölskylduna að því er fram kom í frétt DV árið 2012.
Anna Sigurlaug hefur sjálfsagt talið að hún ætti réttmætt tilkall til þessara peninga eins og bróðir sinn, sem hafði notið góðs af fjölskylduauðnum um langt skeið.
Sigmundur Davíð var þá sagður hafa beitt sér mjög fyrir því að Anna sæti við sama borð og bróðir hennar. Eitthvað stóð þó á því að Anna Sigurlaug fengi peningana sem hún taldi sína, þó það hafi gengið eftir á endanum.
Eins og fyrr segir eru Anna Sigurlaug og Sigmundur Davíð skráð fyrir eignum er nema 1.200 milljónum króna.
Málarekstur Önnu gegn föður sínum rötuðu ekki fyrir dómara en sátt var gerð fyrir utan dómstóla. Þá lá fyrir að málið færi í aðalmeðferð. Niðurstaðan virðist hafa verið sú að Anna fékk þessar 1200 milljónir króna að lokum úr hendi föður síns.
Engu að síður virðist vera gróið um heilt eftir deilurnar um auðinn og þau hjónin eru sögð í nánum tengslum við foreldra Önnu Sigurlaugar.
Þau bjuggu meðal annars hjá þeim í nokkrar vikur í árið 2012 á meðan þau biðu eftir því að fá hús sitt í Garðabæ afhent og voru þar enn þegar frumburður þeirra fæddist.
Ekki er ljóst hvort arfurinn hafi verið greiddur beint út eða hvort að Anna Sigurlaug hafi fært féð út. Sjálf sagði hún í færslu sinni á Facebook að féð væri í útlöndum þar sem þau hjónin hafi ekki verið viss á þeim tíma hvort þau yrðu með fasta búsetu hér á landi eða erlendis. Þannig væri auðveldara að nálgast fjármagnið.
Sigmundur Davíð hefur ekki viljað tjá sig um málefni Wintris.