fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fókus

Vann hug og hjarta heimsins og mætir nú í Eldborg

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 17. febrúar 2025 09:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin frábæra söngkona, lagahöfundur, píanóleikari og margfaldur Grammyverðlaunahafi Norah Jones heldur sannkallaða stórtónleika í Eldborgarsal Hörpu fimmtudaginn 3. júlí. Miðasala hefst föstudaginn 21. febrúar eins og segir í tilkynningu frá Tónleik ehf.

Norah Jones kom fyrst fram á sjónarsviðið með plötunni Come Away With Me árið 2002, sem hún lýsti sjálf sem „lítilli, notalegri plötu”. Hún vann hug og hjörtu heimsins með sinni einstöku rödd og fékk meðal annars GRAMMY-verðlaunin árið 2003 fyrir bestu plötu ársins, GRAMMY-verðlaun fyrir lag ársins og eins verðlaun sem Besti nýi listamaðurinn “. Come away hefur selst í tæpum 30 milljónum eintaka og er ein söluhæsta plata allra tíma. Síðan þá hefur Norah Jones unnið 10 GRAMMY-verðlaun (nú síðast fyrir nýju plötuna VISIONS) og tilnefnd 20 sinnum. Hún hefur selt meira en 53 milljónir platna og lögum hennar hefur verið streymt tíu milljarða sinnum um heim allan.

Hún hefur gefið út fjöldann allan af frábærum og vinsælum sólóplötum — Feels Like Home (2004), Not Too Late (2007), The Fall (2009), Little Broken Hearts (2012), Day Breaks (2016), Pick Me Up Off The Floor (2020), tónleikaútgáfan ‘Til We Meet Again (2021), jólaplötuna I Dream Of Christmas (2021) og Visions (2024). Árið 2022 stofnaði Jones sitt eigið hlaðvarp, Norah Jones Is Playing Along, þar sem hún spjallar á skemmtilegu nótunum við uppáhaldstónlistamenn sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Nærbuxur stjörnunnar verulega umdeildar – „Er þetta Rosa Parks?“

Nærbuxur stjörnunnar verulega umdeildar – „Er þetta Rosa Parks?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lára og lyfjaprinsinn eignuðust dóttur

Lára og lyfjaprinsinn eignuðust dóttur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sex ára dóttir Diljár fékk einstaka gjöf – ,,Meyra og tárvota mamman er svo þakklát“

Sex ára dóttir Diljár fékk einstaka gjöf – ,,Meyra og tárvota mamman er svo þakklát“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Smáatriði í mynd af Justin Bieber á Íslandi veldur fjaðrafoki

Smáatriði í mynd af Justin Bieber á Íslandi veldur fjaðrafoki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Vinn í sálinni, huganum og rassinum“

Vikan á Instagram – „Vinn í sálinni, huganum og rassinum“