fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
Fréttir

Ekki næst í Gabriel sem sakaður er um að smygla miklu magni af kókaíni til landsins

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 30. janúar 2025 16:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gabriel Silva Sarmiento, 43 ára gömlum manni, hefur verið birt fyrirkall og ákæra í Lögbirtingablaðinu vegna þess að ekki hefur tekist að birta honum ákæru í mjög alvarlegu sakamáli.

Gabriel er ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og sakaður um að hafa flutt til landsins tæplega 2 kg af kókaíni. Efnin voru falin í ferðatösku Gabriels er hann kom hingað til lands í nóvember árið 2019 sem farþegi með farþegaflugvél frá Edinborg í Skotlandi.

Athygli vekur hvað langt er síðan meint brot var framið, eða vel yfir fimm ár.

Í fyrirkallinu segir:

„Ákærði er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki ákærði ekki þing, við þingfestingu máls eða á síðari stigum þess, má hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann viðurkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur verði lagður á málið að honum fjarstöddum.“

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 1. apríl næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Kaffistofan er ekki endastöð, hún getur verið upphaf að nýju lífi“

„Kaffistofan er ekki endastöð, hún getur verið upphaf að nýju lífi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“