fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Brynjar elskar Framsóknarflokkinn: Málið erfitt fyrir ríkisstjórnina

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 25. mars 2016 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Vitnað var í mig í fréttum RUV fyrr í dag vegna eigna eiginkonu forsætisráðherra og krafna hennar í slitabúin. Mér fannst það ekki mikil frétt enda sagði ég ekkert annað en sem öllum er ljóst. Umræðan um málið er óþægileg fyrir ríkisstjórnina,“ segir Brynjar Níelsson í pistli á Pressunni. Í hádegisfréttum RÚV er haft eftir Brynjari að málið sé óþægilegt fyrir ríkisstjórnarsamstarfið, þá sérstaklega í ljósi samninga við kröfuhafa og afnáms hafta. Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að funda um málið og fá allar staðreyndir á hreint.

Líkt og ítrekað hefur komið fram í fréttum síðustu daga upplýsti Anna Sigurlaug Pálsdóttir þjóðina um það að hún ætti aflandsfélag á Tortóla. Málið hefur verið umdeilt og Sigmundur gagnrýndur fyrir að greina ekki frá tilvista félagsins. Hann hefur þó notið stuðnings margra þingmanna í meirihluta og hafa framsóknarþingmenn verið iðnir við að rita stuðningsgreinar í fjölmiðla. Sigmundur tjáði sig í fyrsta sinn um málið í Fréttablaðinu. Þar sagði Sigmundur meðal annars að honum bæri ekki siðferðisleg skylda til að upplýsa um félagið. Jafnframt kom fram í sama viðtali að Bjarni Benediktsson sem gegnir stöðu fjármálaráðherra hefði ekkert haft út á það að setja þegar hann frétti af félagi Önnu. Óttar Proppé formaður Bjartrar framtíðar tjáði sig um viðtalið en í frétt á Eyjunni er haft eftir Óttari:

,,Ég á erfitt með forsætisráðherra sem takmarkar siðferðisskyldur sínar við þrengsta lagabókstaf. Ég held ég sé ekki einn um að eiga erfitt með forsætisráðherra sem trassar að setja sér siðareglur, rýmkar þær frekar, og hrósar sér síðan af því að sleppa réttum megin við þær á hverjum tíma.“

Brynjar tjáir sig eins og fram hefur komið í pistli á Pressunni. Þar segir hann að stjórnarflokkarnir komist ekki hjá því að fara yfir málið og ræða það, þá sérstaklega ef fram komi vantrauststillaga.

„Ég hef ekki opinberlega tekið efnislega afstöðu til málsins enda veit ég ekki allar staðreyndir þess. Mér finnst hins vegar afar langsóttar kenningar um vanhæfi ráðherrans. Þá er ekki hægt að halda því fram að ráðherrann hafi misfarið með vald í framgöngu sinni gagnvart slitabúunum, hvað þá að aðrir hagsmunir hafi ráðið en almannahagsmunir, sem er auðvitað aðalatriðið.“

Brynjar bætir við að hann skilji óánægju þeirra sem gagnrýna að hagsmunaupplýsingar hafi ekki legið fyrir.

„Ég vil hins vegar taka það fram, ef einhver skyldi vera í vafa eftir fréttina, að ég er mikill stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar sem og forsætisráðherra enda hefur þessi ríkisstjórn unnið þrekvirki í stærstu hagsmunamálum þjóðarinnar. Breytir þá engu þótt ég sé ekki alltaf sammála ráðherrum og meirihlutanum í öllum málum,“ segir Brynjar og bætir við að lokum: „Og öfugt við Villa vin minn elska ég Framsóknarflokkinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”