fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Dularfullir Kínverjar sem tóku myndir af herstöð flugu frá Íslandi til Bandaríkjanna – Ákærðir ári eftir atvikið

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 2. október 2024 21:22

Camp Grayling herstöðin í Michigan. Mynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saksóknari í Bandaríkjunum hefur ákært fimm kínverska ríkisborgara fyrir að hafa logið að lögreglumönnum og eytt sönnunargögnum eftir að hafa tekið ljósmyndir af herstöð. Fjórir mannanna höfðu komið með flugvél frá Íslandi.

Samkvæmt fréttastofunni AP höfðu mennirnir tekið myndir af herstöðinni Camp Grayling í Michigan fylki í ágústmánuði árið 2023. Voru þeir gripnir glóðvolgir við þessa iðju um miðja nótt og lugu þá að þeir væru fjölmiðlamenn en tóku föggur sínar og fóru.

Gruna háskólanema um njósnir

Við rannsókn málsins kom í ljós að þeir væru skráðir háskólanemar við Michigan háskóla. En bandarísk yfirvöld hafa fengið veður af því að kínverskir háskólanemar í Bandaríkjunum hafi sést taka ljósmyndir við hernaðarmannvirki áður og leikur grunur á að um njósnastarfsemi sé að ræða.

Einn af þeim var stöðvaður við landamæraeftirlit á Detroit flugvelli á leið til Suður Kóreu. Í fórum hans fundust myndir af hertrukkum, teknum þetta umrædda kvöld í ágúst 2023.

Hinir fjórir voru yfirheyrðir eftir að hafa komið frá Íslandi til Chicago. Þeir sögðust hafa verið við Camp Grayling þetta umrædda kvöld en það hafi verið til þess að sjá loftsteinadrífu.

Í fórum mannanna fundust samskipti á samfélagsmiðlinum WeChat þar sem kom í ljós að þeir höfðu sammælst um að eyða ljósmyndum af myndavélum og farsímum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa