

Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað þá Annþór Kristján Karlsson og Börk Birgisson af ákæru um hættulega líkamsárás sem leiddi til andláts Sigurðar Hólms Sigurðssonar, sem fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni, árið 2012. Héraðsdómur kvað upp dóminn klukkan 15 í dag.
Sextán milljóna króna málskostnaður greiðist úr ríkissjóði.
Sveinn Guðmundsson, verjandi Barkar, sagði við blaðamenn eftir að dómur féll að rannsóknin hefði verið afleit og aldrei hefði átt að gefa út ákæru í málinu. Öll gögn málsins hefðu bent til sýknu.
Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs, sagði að dómurinn hefði verið í takt við það sem hann bjóst við. Engin sönnunargögn í málinu hefðu bent til þess að eitthvað refsivert hefði átt sér stað.
Saksóknari fór fram á að þeir Annþór og Börkur yrðu dæmdir í tólf ára fangelsi, en aðalmeðferðin fór fram í lok janúar. Málið er með þeim flóknari sem um getur í íslenskri réttarfarssögu, en það var til meðferðar hjá lögreglu og í réttarkerfinu í fjögur ár.
Annþór og Börkur hafa ávallt haldið fram sakleysi sínu í málinu en við aðalmeðferðina í janúar héldu verjendur Annþórs og Barkar því fram að Sigurður hefði hugsanlega fallið með þeim afleiðingum að miltað skaddaðist og hann lést.
Meðal rannsóknargagna í málinu voru upptökur úr öryggismyndavélum sem sýndu Annþór og Börk fara inn í klefa Sigurðar skömmu áður en hann lést. Nú hefur héraðsdómur sýknað þá Annþór og Börk, en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort dómnum verði áfrýjað.
Þeir Annþór og Börkur afplána nú fangelsisdóma sem þeir hlutu árið 2013 fyrir grófa líkamsárás.