fbpx
Miðvikudagur 29.október 2025
Fréttir

Sigmundur Davíð hneykslaður á Kirkjugörðum Reykjavíkur – „Allt að leysast upp í einhverja vitleysu“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. ágúst 2024 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú ákvörðun Kirkjugarða Reykjavíkur að taka krossinn út í nýju lógói sínu og fyrirætlanir þeirra um að hætta að nota orðið „kirkjugarður“ fara mjög fyrir brjóstið á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins. Sigmundur segir í stuttri færslu á Facebook-síðu sinni að allt sé að leysast upp í vitleysu þessa dagana:

„Kirkjugarðar Reykjavíkur eru orðnir hræddir við krossinn, ákváðu að breyta lógóinu og vilja helst ekki tala um kirkjugarða („you had one job”).

Auðvitað voru ekki allir sem jarðaðir eru í kirkjugörðum kristnir og sumir kjósa að vera grafnir annars staðar og vissulega er allt í lagi með það.

En hvers vegna er allt að leysast upp í einhverja vitleysu þessa dagana?“

Færsla Sigmundar Davíðs fær mikil viðbrögð en þegar þetta er skrifað hafa 875 lesendur gert tákn við hana. Ummæli undir henni eru um 150. Benedikt Sigurðarson andmælir honum og segir:

„Kæri SDG, ertu ekki aðeins að ruglast? Hvar býðst ókristnum legstaður „annars staðar“ – ? En þar sem krossinn og kirkjan eru með öll ráð?

Þetta snýst á endanum um að það verði rými fyrir okkur öll – og ég gæti fengið legstað án þess að krossmark væri á öllum pólum og hliðum og jafnvel á öllum næstu gröfum.

Undanfarið hefur eina leið þeirra sem vilja forða sér í eilífðinni undan krossmarki kirkjunnar að láta brenna sig og kasta öskunni á rúmsjó eða í óbyggðir.“

Miklu fleiri sem þarna taka til máls eru þó sammála Sigmundi Davíð og meðal þeirra er Einar Gíslason, sem skrifar:

„Þessir garðar eru allir vígðir og helgaðir. Kristnir menn hafa valið sér legstað í skjóli þess og vissu.

Það væri að mínu viti algerlega fráleitt af biskup og fulltrúum þjóðkirkju að samþykkja þessa vanhelgun.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

FESTI aðalstyrktaraðili Félags kvenna í atvinnulífinu

FESTI aðalstyrktaraðili Félags kvenna í atvinnulífinu
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Stefán Máni segir frá tálbeitunni sem fylgt hefur honum í 17 ár – „Ég opnaði bara einhverjar dyr og Hörður gekk inn um þær“

Stefán Máni segir frá tálbeitunni sem fylgt hefur honum í 17 ár – „Ég opnaði bara einhverjar dyr og Hörður gekk inn um þær“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Einar segir stöðuna að teiknast upp á verri veg – Lítið skyggni á Reykjanesbraut

Einar segir stöðuna að teiknast upp á verri veg – Lítið skyggni á Reykjanesbraut
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lögregla vísar fólki úr röðum við hjólbarðaverkstæði – Vanbúnir bílar fjarlægðir með dráttarbílum

Lögregla vísar fólki úr röðum við hjólbarðaverkstæði – Vanbúnir bílar fjarlægðir með dráttarbílum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lögregla með áríðandi tilkynningu – Mjög slæm færð á höfuðborgarsvæðinu

Lögregla með áríðandi tilkynningu – Mjög slæm færð á höfuðborgarsvæðinu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bætir í snjókomuna í dag – Gul viðvörun í gildi

Bætir í snjókomuna í dag – Gul viðvörun í gildi