fbpx
Laugardagur 10.maí 2025
Fréttir

Ný krapavél sem veldur byltingu í kælingu á fiski

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 12. júlí 2024 12:34

Sigmar Pálsson, tæknistjóri Ný-Fisks, og Heimir Halldórsson, viðskiptastjóri hjá KAPP við nýju krapavélina sem afhent var í höfuðstöðvum Ný-Fisks í Sandgerði í gær.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KAPP ehf afhenti Ný-Fisk fyrsta eintakið af nýrri og byltingakenndri krapavél í höfuðstöðvum Ný-Fisks í Sandgerði í gær. Vélin er fyrsta krapavélin með CO2 sem er fjöldaframleidd í heiminum. CO2 er nú í boði fyrir allar OptimICE krapavélar á markaðnum. Vélin er knúin 100% CO2 kælimiðli. Orkunotkunin er mun minni með CO2 krapavél heldur en í eldri vélum.

Í tilkynningu kemur fram að öll hönnun, þróun og smíði á vélinni hefur verið hjá KAPP, þar sem allar krapavélar hafa verið framleiddar. Hönnunin var lengi í þróun og unnin í samstarfi við nokkur erlend fyrirtæki, hvert með sérþekkingu á sínu sviði. OptimICE hefur verið selt um allan heim síðan 1999 með miklum árangri og flestar stærstu útgerðir bæði á Íslandi og erlendis eru með OptimICE  í skipum sínum og einnig í landvinnslu.

,,OptimICE vélarnar hafa valdið byltingu í kælingu á fiski og kom í stað fyrir hefðbundinn flöguís. Með OptimICE  hraðkælingu verður öll vinnuaðstaða mun auðveldari enda er krapinn unninn úr sjó um borð í skipum og einfaldlega sprautað úr slöngu yfir fiskinn,“ segir Heimir Halldórsson, viðskiptastjóri hjá KAPP.

,,Þar sem OptimICE er fljótandi þá umlykur krapinn allan fiskinn og kælir hann rétt undir frostmark á um einni klst. og helst hitastigið þannig allan túrinn. Hraðkælingin umlykur fiskinn, kemur honum hratt niður fyrir 0°C og heldur honum í kringum -0,5 °C allan veiðitúrinn, í löndun, í flutningi þvert í kringum landið og allt til endanlegs viðskiptavinar. Kælikeðjan rofnar því aldrei með OptimICE og fiskurinn helst ferskur í hámarksgæðum allan tímann,“ segir Heimir. Hann nefnir að kæling með flöguís tekur um fimmtán klst. og nái samt ekki að komast undir 0°C. Hillutíminn lengist með OptimICE kælingu um 5-7 daga. Nýja vélin var kynnt á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í vor og fékk mikla athygli á sýningarbás KAPP þar. 

KAPP er með söluskrifstofur erlendis í Noregi, Frakklandi, Englandi, Færeyjum, Bandaríkjunum og Mexikó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Staksteinar gera stólpagrín að borgarfulltrúa Pírata

Staksteinar gera stólpagrín að borgarfulltrúa Pírata
Fréttir
Í gær

Segir Trump nánast vera kominn á „norðurkóreskt stig“

Segir Trump nánast vera kominn á „norðurkóreskt stig“
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl geldur varhug við þingsetu Hannesar – „Rifjum upp nú geðveikasta póst allra tíma“

Brynjar Karl geldur varhug við þingsetu Hannesar – „Rifjum upp nú geðveikasta póst allra tíma“
Fréttir
Í gær

Þurfa að búa áfram við skothvelli – Fengu sólarhring til að senda inn athugasemdir

Þurfa að búa áfram við skothvelli – Fengu sólarhring til að senda inn athugasemdir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón leggur til róttæka breytingu á frídögum – „Að mínu mati er þetta fyrirkomulag óheppilegt“

Jón leggur til róttæka breytingu á frídögum – „Að mínu mati er þetta fyrirkomulag óheppilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“