„Eðlilega vildi ég ná að endurvirkja hann. Mikið af myndum og minningum. Það var hins vegar þrautinni þyngra að finna einhvern tengilið á Facebook,“ segir Gunnlaugur í grein sem hann skrifaði um málið og birtist á vef Vísis nú í hádeginu.
Hann segist hafa fengið Opin kerfi til að skoða málið og þar á bæ hafi menn komist að því að Facebook-aðgangurinn hafi verið hakkaður. Fékk hann öryggisnúmer Facebook sent til sín, +1 866 554 3839, en Gunnlaugur segir að illa hafi gengið að ná sambandi við nokkurn mann og svo hafi sambandið iðulega slitnað án nokkurrar niðurstöðu.
„Loks náði ég sambandi við „traustvekjandi“ náunga sem kynnti sig sem Mike. Hann var með indverskan framburð. Hann gaf mér upp sitt símanúmer til að tryggja að samband héldist (sjá símanúmer í viðhengi). Mér kom ekki annað til hugar en að ég væri að tala við starfsmann Facebook,“ segir Gunnlaugur í grein sinni.
Þessi „traustvekjandi“ náungi tjáði Gunnlaugi að hann hefði verið hakkaður og þar að auki hafi verið komist yfir bankaupplýsingar hans.
„Hann virtist sannfærandi í að vera að rannsaka málið og leita lausna. Hann tjáði mér að til að geta gert „deep scan“ þá þyrfti ég að hlaða niður appi nefnt Anydesk. Til þess að uppræta hakkarana sem hafi komist yfir bankaupplýsingarnar þyrfti ég að fara inn á heimabankann minn. Auk þess þyrfti ég að hlaða niður appi sem héti Wise. Þar þyrfti að búa til „dummy account“ og millifæra til að hakkararnir bregðist við og sé hægt að hreinsa þá út.“
Gunnlaugur segir í greininni á Vísi að til að gera langa sögu styttri þá hafi honum tekist að millifæra rúmar 100 þúsund krónur út af reikningnum yfir á Wise og þaðan yfir á nafn Ramulo Quinto sem virðist reikningur á Filippseyjum.
„Að sjálfsögðu skammast ég mín fyrir að láta leiða mig þessa leið. Tapa fjármunum af bankareikningi og borga tuttugu þúsund í símakostnað við „hjalparaðila“. Ég lagði svo mikið traust á að Opin kerfi hafi bent á þetta símanúmer. Það hvarflaði ekki að mér að með einhverjum hætti hefðu hakkararnir tekið yfir hringinguna í Facebook-númerið og nýttu það til að ná út úr fólki fé. Hinn möguleikinn er að starfsmaður (Mike) í hjálparnúmeri Facebook hafi reynst svikull og nýtt tækifærið til að ræna mig.“
Gunnlaugur segist vera alveg ráðalaus um hvað hann getur gert til að endurheimta aftur þau persónulegu verðmæti sem liggja í Facebook-síðu hans eða að fá fjárhagstjónið bætt.
„Þetta er mikilvægt að fá upplýst. Reynsla mín á erindi við almenning og þarf umræðu og umfjöllun. Það hlýtur einhver að vera ábyrgur fyrir því að tryggja traust á þessum mikilvæga vefmiðli. Að brugðist sé við og axlað ábyrgð þegar notendur eru leiddir í slíkar óhöngur þegar þeir eru í góðri trú að hafa samband við öryggisnúmer fyrirtækisins.“