fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
Pressan

Dæmd í 90 ára fangelsi fyrir morðið á atvinnureiðhjólakonu – Var á flótta og fór í lýtaaðgerð

Pressan
Föstudaginn 24. nóvember 2023 06:30

Kaitlin Armstrong: Mynd:City of Austin Police Department

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á föstudaginn var Kaitlin Armstrong dæmd í 90 ára fangelsi fyrir morðið á Anna Moriah Wilson sem var atvinnureiðhjólakona.

ABC News segir að kviðdómur í Austin í Texas hafi fundað stóran hluta af föstudeginum til að komast að niðurstöðu um þyngd refsingarinnar. Að lokum var niðurstaðan 90 ára fangelsi og 10.000 dollara sekt. Daginn áður tók það kviðdóminn tæpar þrjár klukkustundir að komast að niðurstöðu og úrskurða Armstrong seka um morð af fyrstu gráðu.

Wilson, sem var 25 ára þegar hún var myrt, fannst helsærð heima hjá vinkonu sinni í Austin í Texas þann 11. maí 2022. Lögreglan sagði strax í upphafi að svo virtist sem um skipulagt morð hafi verið að ræða.

Armstrong, sem er 35 ára jógakennari, var handtekin í Kosta Ríka 43 dögum síðar. Hún var síðan ákærð fyrir morð af fyrstu gráðu. Nokkrum dögum áður en hún var handtekin greiddi hún sem nemur rúmlega einni milljón íslenskra króna fyrir lýtaaðgerð.

Wilson átti í ástarsambandi við Colin Strickland, atvinnureiðhjólamann, sem var áður unnusti Armstrong. Hún var myrt nokkrum klukkustundum eftir að hafa hitt Strickland í Austin.

Þegar saksóknarar fluttu málið hvöttu þeir kviðdómendur til að taka „eðli“ morðsins með í reikninginn sem og tilraun Armstrong til að flýja. Kröfðust þeir að minnsta kosti 40 ára fangelsisdóms yfir Armstrong.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

McVities segir að fólk hafi borðað súkkulaðikex á rangan hátt síðustu 100 árin

McVities segir að fólk hafi borðað súkkulaðikex á rangan hátt síðustu 100 árin
Pressan
Í gær

Sefur þú best með þunga eða létta sæng? Það segir kannski meira um þig en þú átt von á

Sefur þú best með þunga eða létta sæng? Það segir kannski meira um þig en þú átt von á
Pressan
Í gær

Hún var á leið upp á stjörnuhimininn en lifði tvöföldu lífi – Hvað varð eiginlega um hana og hver var hinn dularfulli Kirk?

Hún var á leið upp á stjörnuhimininn en lifði tvöföldu lífi – Hvað varð eiginlega um hana og hver var hinn dularfulli Kirk?
Pressan
Í gær

Söngvararnir sem fórnuðu öllu fyrir röddina

Söngvararnir sem fórnuðu öllu fyrir röddina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Drottning glæpasögunnar kennir handan grafarinnar – Lærðu hvernig á að skrifa hina fullkomnu glæpasögu

Drottning glæpasögunnar kennir handan grafarinnar – Lærðu hvernig á að skrifa hina fullkomnu glæpasögu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Einfalt 30 sekúndna próf til þess að kanna hvort þú sérst með undirliggjandi heilaæxli

Einfalt 30 sekúndna próf til þess að kanna hvort þú sérst með undirliggjandi heilaæxli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona komast Kínverjar fram hjá tollum Trump

Svona komast Kínverjar fram hjá tollum Trump
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi

Trump útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi