fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Sveinn: Unga parið vildi flytja heim til Íslands en fékk ótrúleg svör – „Tökum smá tíma og látum það síast inn“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. október 2023 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mikið væri óskandi að ónýt króna væri jafn sexí hjá réttsýnum mótmælendum og norskur eldislax,“ segir Sveinn Waage, markaðsstjóri og fyrirlesari.

Sveinn skrifar aðsenda grein sem birtist á vef Vísis í morgun og er óhætt að segja að um athyglisverða lesningu sé að ræða.

„Stundum afhjúpast ískaldur raunveruleikinn á óvæntum stöðum. Að vísu afhjúpast ótrúlegustu hlutir á þessum sama vettvangi eins og við þekkjum. En svo gerast þar hlutir sem segja okkur meira en annað. Afhjúpa ástand og afstöðu,“ segir Sveinn og heldur áfram:

„Á einni af vinsælum grúbbum á Facebook þar sem fólk leitar ráða og deilir upplýsingum um ákveðin mál s.s. fjármál, spurði ungt par með börn um ráð varðandi húsnæði og fl. fyrir heimkomu til Íslands frá öðru landi í Evrópu. Ekki skorti svörin en það er í raun hægt að súmmera þau í þrjú orð; „EKKI KOMA HEIM!“

Vonlaust ástand

Sveinn tekur fram að hér hafi ekki verið stjórnmálamenn eða aðrir hliðverðir hagsmuna að tjá sig og gefa ráð, heldur venjulegt fólk – hinn frægi almenningur. Íslenska þjóðin.

„Ekki koma heim“ eru ráðin sem fjölmargir Íslendingar er þarna gefa löndum sínum!?! Tökum smá tíma og látum það síast inn,“ segir Sveinn.

Hann segir að þarna sé verið að vísa í hversu vonlaust er fyrir ungt fólk að koma sér upp húsnæði í dag. Það sé vonlaust án þess að vera með sterka fjárhagsstöðu sem fæstir búa yfir sem ekki hafa sterkt bakland með sér.

Tveir galnir kostir

„Þegar kemur að fjármögnun húsnæðis erum einfaldlega stödd í leikhúsi fáránleikans. Tveir galnir kostir. Að því gefnu að þú standist greiðslumat, sem nánast ekkert ungt fólk gerir, þá getur þú tekið óverðtryggt lán í íslenskum krónum og borgað galnar afborganir sem hækka og lækka eftir ákvörðunum Tene-tásu-teljandi seðlabanka, eða verðtryggð lán í sömu krónum sem ættu samkvæmt öllu velsæmi að vera ólögleg. Þar er eina leiðin til að lenda ekki í algerum ógöngum að eignin þín hækki hraðar en lánið. Segðu útlendingum þetta og þeir horfa á þig með sama svip og þegar við segjum þeim að í 56 ár máttum við kaupa Vodka en ekki bjór. Blanda af forundran og vantrú.“

Sveinn kveðst ekki bjartsýnn á að nýr fjármálaráðherra muni breyta miklu. „Krónu-Ásgeir mun áfram hringsnúast í svörtu loftum enda ringlaður að halda utan um hopp-skoppandi ónýta ör-mynt sem er minni en Disney-dollarinn og fyrirtæki vilja ekki nota. Auðvitað ekki.“

Sveinn hefur fengið nóg.

„Mikið væri óskandi að okkur sem þjóð hryllti nóg við þessu ömurlegu heilráðum Íslendinga til samlanda sinna erlendis, til að gera eitthvað í því. Að við gerðum eitthvað annað en að segja við unga fólkið í útlöndum; „EKKI KOMA HEIM!““

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Ásgerður Jóna sár út í Ingu Sæland: „Í þriðja sam­tal­inu sagðist hún ekk­ert geta gert“

Ásgerður Jóna sár út í Ingu Sæland: „Í þriðja sam­tal­inu sagðist hún ekk­ert geta gert“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár