fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Vilhjálmur vill nýta heimild til að hækka hámarkshraða

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 5. október 2023 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í samgöngunefnd Alþingis, segir að víða væri hægt að hækka hámarkshraða á þjóðvegum landsins.

Vilhjálmur lagði á dögunum fram fyrirspurn til Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra hvort til skoðunar hefði komið að nýta heimild í umferðarlögum um aukinn hámarkshraða á ákveðnum vegarköflum. Spurði hann enn fremur hvers vegna þessi heimild hefði ekki verið nýtt.

Hann var gestur í þættinum Reykjavík síðdegis í gær þar sem hann benti á að í umferðarlögum frá 2019 hafi verið sett inn heimild til að hækka hámarkshraðann að vissum skilyrðum uppfylltum.

Ráðherra var falið að útfæra þessi skilyrði nánar í reglugerð sem ekkert bólar á. Ákvað Vilhjálmur því að spyrjast fyrir um málið og bíður hann svara.

„Nú eru liðin fjögur ár og ýmsir vegir komnir með aðskildar akstursstefnur, eru tveir plús tveir eða tveir plús einn á löngum köflum,“ sagði hann og nefndi til dæmis Reykjanesbrautina og Suðurlandsveg máli sínu til stuðnings.

Sem fyrr segir væri ráðherra að segja til um hvaða skilyrði þyrfti að uppfylla en Vilhjálmur, sem er fyrrverandi lögreglumaður, nefnir í því samhengi aðskildar akstursstefnur og að umhverfi vegarins sé öruggt. Vilhjálmur notar Reykjanesbrautina sjálfur mikið og segir að þar sé hægt að hækka hraðann.

„Já, það eru margir kaflar sem ég gæti treyst á. Maður finnur það alveg að ef maður keyrir á 90 kílómetra hraða þá er maður ekki að keyra á umferðarhraðanum. Umferðarhraðinn er nær 110 en þessum 90 kílómetrum,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast