Hagar hafa opnað fyrir umsóknir í nýsköpunarsjóðinn Uppsprettan. Þetta er í þriðja sinn sem Uppsprettan auglýsir úthlutun og eru um 20 milljónir til úthlutunar úr sjóðnum í ár. Umsóknarfrestur er til og með 27. september. Hlutverk sjóðsins er að virkja og styðja við frumkvöðla til nýsköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu og sérstakt tillit er tekið til sjálfbærni verkefna sem styðja við þróun, minnkun matarsóunar og hagræðingu í íslenskri matvælaframleiðslu. Kemur þetta fram í tilkynningu.
Verkefnin sem hafa áður hlotið styrk frá Uppsprettunni eru einkar fjölbreytt. Má þar nefna, Mijita, sem framleiðir vörur innblásnar af kólumbískri matargerð og Vegangerðina sem framleiðir meðal annars vegan tempeh sem náði fljótt fótfestu á íslenskum matvælamarkaði. Öll verkefnin eiga það sameiginlegt að kolefnisfótspori þeirra er haldið í lágmarki.
„Það er ánægjulegt hvað áhuginn á Uppsprettunni hefur verið mikill frá byrjun, sem sýnir okkur að gróska í nýsköpun og þróun vöru fyrir dagvörumarkað er mikil. Okkur hjá Högum finnst mikið varið í að fá að styðja hugmyndaríka frumkvöðla og búa til skilvirkan farveg til að koma skemmtilegum nýjungum í hillur verslana þar sem viðskiptavinir fá að njóta þeirra. Á síðustu tveimur árum hafa okkur borist tugir umsókna og samtals hafa 23 verkefni verið styrkt um tæpar 30 m.kr. Meira en helmingur þessara verkefna hefur nú þegar skilað vörum í verslanir og von er á fleirum núna á haustmánuðum. Eins og fyrr, þá leitumst við við að styðja verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif og stuðla að minna umhverfisspori í framleiðslu og dreifingu. Vonandi sækja sem flestir um og stuðla þannig að aukinni fjölbreytni í dagvöruverslun og jákvæðum áhrifum á samfélag okkar og umhverfi,“ segir Finnur Oddssonframkvæmdastjóri Haga.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjóðsins.