fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FókusKynning

Kostnaður við framrúðuviðgerðir er í höndum tryggingafélaga

Kynning
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 10. febrúar 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Eiríksson , eigandi Glerpró, hefur starfað við framrúðuviðgerðir – og skipti – síðan 1994 og starfsmenn fyrirtækisins búa að mikilli reynslu. Glerpró þjónustar bíla af öllum stærðum og gerðum en oftast fæst það við stóra bíla og rútur. Sigurður segir ástæðuna fyrir því vera að hinn almenni bíleigandi átti sig oft ekki á því að hægt er að gera við skemmdir í rúðum honum að kostnaðarlausu. „Oft þarf líka að skipta út rúðum og ekki hvað síst þegar skemmdir eru í sjónlínu ökumanns. Það fer eftir eðli skemmdarinnar en sumar þeirra hverfa fullkomlega eftir viðgerðina. Framrúðuviðgerðir eru vandasamt verk en við leggjum metnað okkar í að vinna hratt og örugglega.“

Hröð og skilvirk þjónusta

Það líður yfirleitt ekki nema um klukkustund frá því að bílinn kemur til viðgerðar hjá Glerpró þangað til hann er tilbúinn. „Það er pöntunarkerfi fyrir bílrúðuviðgerðir á heimasíðu Glerpró, glerpro.is, og þar er tengill þar sem viðskiptavinurinn skráir bílnúmer bifreiðarinnar og símanúmer sitt og hefur fyrirtækið samband við viðkomandi. Það er einnig hægt að hringja og panta tíma í síma 776-8600 eða senda póst á glerpro@gmail.com.
Fólk getur líka komið við hjá Glerpró að Hyrjarhöfða 2 því yfirleitt er farið beint í verkið.“

Algengt að rúður springi út frá skemmdum

Sigurður ítrekar að farsælast sé að viðgerð eigi sér stað áður en raki kemst í sprungur. „Það er tvöfalt gler í rúðunum og öryggisfilma liggur á milli glerjanna. Ef raki kemst í hana getur hún gránað og þá verður grár blettur eftir í rúðunni sem næst ekki úr. Það er þó hægt að setja svokallaðan rúðuplástur á skemmdina til þess að koma í veg fyrir að óhreinindi og vatn komist í hana. Það er líka vert að hafa í huga að rúðuskemmdir þola illa hitabreytingar og algengt er að rúður springi út frá skemmdum,“ segir Sigurður.

Mikilvægt að mæta strax ef sprunga myndast

„Rúðuviðgerðir eru bíleigendum að kostnaðarlausu þar sem kostnaðurinn er alfarið á ábyrgð tryggingafélaganna. Best er að koma í rúðuviðgerð um leið og sprunga kemur á rúðuna. Við getum þó alveg gert við gamlar skemmdir líka en þá er sú hætta fyrir hendi að vatn eða óhreinindi hafi komist í skemmdina og það næst aldrei alveg úr. En það er þó hægt að lagfæra meirihluta skemmda sem koma í rúður,“ segir Sigurður að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum