fbpx
Laugardagur 18.október 2025
Fréttir

Segir söguna á bak við Hollywood-stórmyndina vera blekkingu – Fer í mál við hjónin sem ættleiddu hann og studdu til afreka

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 16. ágúst 2023 07:00

Stórmyndin The Blind Side sló í gegn árið 2009 og hlaut Sandra Bullock Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Oher, fyrrum atvinnumaður í bandarísku NFL-deildinni, hefur kært hjónin Sean og Leigh Anne Thuhoy fyrir að hafa platað sig til að afsala sér fjárráð sín í hendur þeirra.

Margir þekkja eflaust sögu Oher af hvíta tjaldinu en hún var innblástur að bókinni The Blind Side og síðar samnefndri kvikmynd sem sló rækilega í gegn og landaði meðal annars Sandra Bullock Óskarsverðlaununum eftirsóttu fyrir hlutverk sitt sem Leigh Anne í myndinni.

Í stuttu máli fjallaði bókin um hvernig að hin góðhjartaða Thuhoy-fjölskylda, og þá sérstaklega Leigh Anne, tók að sér  hinn unga Oher sem flakkaði á milli fósturfjölskyldna og hjálpaði honum til þess að verða atvinnumaður í íþrótt sinni þar sem hann landaði meðal annars Ofurskálinni ásamt liðsfélögum sínum í Baltimore Ravens árið 2013.

Segir ættleiðinguna hafa verið blekkingu

Sagan var á þá leið að hjónin hafi ættleitt Oher en í málsókninni heldur hann því fram að það hafi verið blekking. Hann hafi aðeins afsalað sér fjárráðum sínum til hjónanna sem þau hafi svo nýtt sér til þess að hagnast ævintýralega, fyrir sig og tvö líffræðileg börn sín,  á sögunni sem heillaði heimsbyggðina. Kvikmyndin The Blind Side sló rækilega í gegn og halaði inn rúmlega 300 milljónum dollara, um fjörtíu milljörðum króna, en kostaði aðeins tæplega 30 milljónir dollara í framleiðslu.

Í kærunni er fullyrt að hjónin hafi stofnaði vörslusjóð sem þau hafi nýtt til að hagn­ast á ferli og nafni Oher og fer hann fram á að sjóðurinn verði leystur upp og að hjónunum verði meinað að nota nafn hans og sögu til þess að afla sér tekna í framtíðinni.  Kemur ennfremur fram í málsskjölum að Oher  hafi komist að því í febrúar á þessu ári að hann tengdist Thuhoy-fjölskyldunni engum fjölskylduböndum sem hafi verið mikið áfall.

Sean og Leigh Anne Thuhoy á góðri stund með Michael Oher

Lítill hluti af auðæfum fjölskyldunnar

Í fréttum erlendra miðla kemur fram að Thuhoy-fjölskyldan neiti staðfastlega sök í málinu og að þau séu miður sín vegna þess. Lögfræðingar þeirra hafa fullyrt að Oher sé sá sem hafi rangt við en hann hafi ítrekað hótað hjónunum að stíga fram með neikvæða sögu sem myndi skaða þá ef að þau myndu ekki greiða honum 15 milljónir króna, tæplega tvo milljarða króna.

Þá segjast hjónin ennfremur hafa deilt ágóðanum af vinsældum The Blind Side með „syni sínum“ og hafi haldið áfram að greiða hans hluta inn á vörslusjóðinn þrátt fyrir hótanir hans.

Þá hafa lögfræðingar þeirra einnig beint á að Thuhoy-hjónin hafi ekki haft neina ástæðu til þess að snuða Oher um sinn skerf af peningunum enda sé um að ræða lítinn hluta af gríðarlegum auðæfum sem þau hafi byggt upp með rekstri skyndibitastaða, meðal annars Taco Bell og KFC, í Bandaríkjunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Maður sem gat ekki hætt að svíkja undan skatti dæmdur í tveggja ára atvinnurekstrarbann

Maður sem gat ekki hætt að svíkja undan skatti dæmdur í tveggja ára atvinnurekstrarbann
Fréttir
Í gær

Reykjavíkurborg selur stórt hús í miðborginni en böggull fylgir skammrifi

Reykjavíkurborg selur stórt hús í miðborginni en böggull fylgir skammrifi
Fréttir
Í gær

Ár liðið frá hryllingsárásinni á Hafdísi – „Þá mun ég alltaf sigra“ – Myndir

Ár liðið frá hryllingsárásinni á Hafdísi – „Þá mun ég alltaf sigra“ – Myndir
Fréttir
Í gær

Fjórir hestar veiktust og einn drapst eftir að hafa verið innan girðingar ratsjárstöðvar Landhelgisgæslunnar – Orsökin óljós

Fjórir hestar veiktust og einn drapst eftir að hafa verið innan girðingar ratsjárstöðvar Landhelgisgæslunnar – Orsökin óljós