fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Ásgeir fær himinháa sekt fyrir skattsvik – Heppni að ekki fór verr þegar byggingarkrani hrundi í miðbænum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 30. júní 2023 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 23. júní síðastliðinn var Ásgeir Arnór Stefánsson sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir skattsvik í rekstri fyrirtækisins Örk bygg ehf. Vanskil fyrirtækisins á staðgreiðslu skatta af launum starfsmanna þess námu nokkuð yfir 80 milljónum króna. Ásgeir játaði brot sín fyrir dómi og var dæmdur 14 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða rúmlega 152 milljónir í sekt í ríkissjóð og geri hann það ekki innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins þarf hann að sæta fangelsi í eitt ár.

Fyrirrennari félagsins Örk bygg, Örk, kom mikið við sögu í fréttum árið 2016 vegna kranaslyss í miðbænum. Var þar um að ræða stórhættulegt atvik og mildi að ekki urðu slys á fólki. Í frétt DV frá árinu 2016 segir:

„Allt var með kyrrum kjörum í miðborg Reykjavíkur morguninn 29. september árið 2016. En rónni var raskað þegar byggingarkrani, sem staðsettur var í Hafnarstræti, hrundi rétt fyrir hádegi. Timburhlaðinn kraninn féll á nýbyggingu og yfir á planið hjá pylsusölunni Bæjarins bestu. Þeir sem sáu slysið sögðu hann hafa fallið saman og ótrúlegt lán að fáir hafi verið á ferð á svæðinu. Vanalega eru tugir í röð hjá Bæjarins bestu á þessum tíma en af einhverjum ástæðum var enginn í röðinni þegar kraninn féll. Síðan þá hefur lítið frést af málinu en því er þó ekki lokið.“

„Þetta er tilraun til manndráps“

Skömmu eftir slysið lýsti Eyjólfur Sæmundsson, fyrrverandi forstjóri Vinnueftirlitsins, sem nú er látinn, því yfir að grunur léki á því að átt hefði verið við öryggisbúnað kranans til þess að hægt væri að stafla meira efni á hann. Oddur R. Ólafsson, hjá vinnuvéladeild Vinnueftirlitsins, tók dýpra í árinni og sagði við DV, aðspurður um hvort málið yrði kært: „Það er alveg á kristaltæru. Þetta er tilraun til manndráps.“

Ásgeir, hjá Örk, sagði hins vegar að ástæður slyssins væru fyrst og fremst vandamál í búnaði kranans. Hann sagði að auki: „Ég sendi mína pólsku stráka á krananámskeið hjá Vinnueftirlitinu. Hans mannlegu mistök hefðu sennilega ekki orðið svona stór ef honum hefði verið kennt almennilega á kranann.“

Málið kom ekki til kasta dómstóla en Örk var úrskurðuð til að greiða 11 milljónir króna vegna eyðileggingar kranans, kvists sem kýldist niður í húsið og upphífingar á brakinu. Ásgeir sagði á sínum tíma við DV: „Ellefu milljónir er mikið fyrir lítið fyrirtæki. Ég hef hugsað um að kæra, en ég hef ekki gert það því að dómsmál geta farið á hvorn veginn sem er. Ég var alltaf mjög ósáttur við þetta.“

Sjá einnig: Ásgeir ákærður fyrir stórfelld skattsvik – Byggingarkrani hrundi í miðbænum og fyrirtækið fór á hausinn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Glódís er leikfær
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“
Fréttir
Í gær

Segja fjármál Kópavogsbæjar vera í uppnámi

Segja fjármál Kópavogsbæjar vera í uppnámi
Fréttir
Í gær

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“
Fréttir
Í gær

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar
Fréttir
Í gær

VÆB áfram í Eurovision!

VÆB áfram í Eurovision!